
Heil og sæl öllsömul, og verið innilega velkomin á margspilun, matur og menning á miðvikudegi.
Hugmyndin er að fólk geti kynnt sitt samfélag (Discord/subreddit/facebook group.. o.s.frv.), einhvern menningar viðburð sem þið eruð spennt fyrir eða einhverjar kræsingar sem þið fundu.
t.d. Er bílskúrsbandið þitt að troða upp? segðu okkur frá og kannski mæta fleiri, Fórstu í bíó og ert með heita skoðun á myndinni? ert þú(eða vinur þinn) með fyrsta uppistandið? Ertu að safna liði í bumbubolta? Er roller derby liðið þitt með fjáröflunar hitting? Ný ísbúð opnuð? Ertu að stíga fyrstu skrefin í selja þína eigin hönnun? Ertu að fikra þig áfram í kökugerð? Var nýr staður að opna? Varstu að smakka eitthvað nýtt? **Við viljum heyra frá þér**.
​
Við erum með lista af væntanlegum útihátíðum á Íslandi
[Hátíðir um allt land](https://hatidirumalltland.weebly.com/)
​
Við búum svo til lista af samfélögum eða hlekki á hönnuði, föndrara eða veitingastaði/kaffihús/ísbúð sem þið mælið með.
​
Hér er pláss geymt fyrir eitthvað sem þið viljið að sem flestir sjái.
​
Við erum með Íslenska subreddita.
r/klakinn \- Íslensk jörm eftir mikla völundarsmiði. Handritin Heim!
r/Borgartunsbrask \- Íslensk fjármál, hlutabréf og fjárfestingar
r/Boltinn \- Allt sem tengist knattspyrnu, bæði innlendri og erlendri.
r/MIPMPPJWFA \- Music Icelandic people might play at a party or just with friends around.
r/Reykjavik \- Aðalmálin í borg óttans.
r/Ljod \- Ljóð, frumsaminn flest, furðuverk á flækingi.
​
Við erum með margspilunar discord rásir fyrir:
[**Smash bros**](https://discord.gg/qJrJK2AeAs) \- Smash bros ultimate félag á Íslandi, ” tiltölulega stór hópur Smash Bros Ultimate spilara á öllum styrkleikastigum sem erum með Discord þar sem við ræðum leikinn og skorum hvert á annað ”
[**Herkænskuleiki**](https://discord.gg/4gUP9WVtsa) “Crusader Kings, Europa Universalis, Heart of Iron, Stellaris, Victoria, ofl” – ” Við erum að taka vikulega leiki í Stellaris, Europa Universalis, og Crusader kings (mánudagar, miðvikudagar, og fimmtudagar). En það má alveg endilega bara spyrja fólk hvort þeim langi að spila alveg sama hvaða leikur og dagur er 🙂 ”
1 comment
Langaði að mæla með þáttum sem ég hef verið að horfa á “silo” og líka “for all mankind”. En mæli reyndar með að horfa á silo, ekki lesa of mikið um það þar sem að ef þú gerir það þá ertu að fara spilla fyrir þér þar sem þetta eru bækur og svona skemmtilegra að horfa bara á þættina. En “for all mankind” er um ef Sovétríkinn hefðu verið á undan til tunglsins og geimkapphlaupið í kjölfarið stigmagnast. Við höfum aldrei sent ref út í geim. 🦊