Eig­endur eldri bíla gætu þurft að kaupa dýrara bensín – Vísir

6 comments
  1. Ríka fólkið fær afslátt af rafmagnsbílum;

    Millistéttin er nokkurn veginn látin í friði;

    En fátækir skulu gjöra svo vel að borga dýrara bensín en hinir!

  2. Alltaf að græða á grænu.

    inb4 “Það er bara þeim að kenna að vera keyra um á gömlum bílum”

  3. Þykir spes að segja að fyrir langflesta hafi þetta engin áhrif, það að bifreið geti keyrt á því þýðir ekki að það sé gott. Til að mynda fylgir hærra etanólmagn meiri tæring, eldsneytistankar, eldsneytisleiðslur, hefur áhrif á ákveðna málma, hluti úr gúmmí, plasti og þéttingar. Þar að auki ætti að vara fólk við sem keyrir stuttar leiðir að þá getur það leitt til þess að það hafi áhrif á vélarolíu bílsins. Svo þetta mun ekki hafa áhrif í formi þess að þú getur fyllt á og keyrt áfram en líklegt er að þetta sé ekki að fara vel í hvorki vél né eldsneytiskerfi bílsins. Bílar sem hafa verið hannaðir til þess að keyra á slíku eldsneyti myndu hafa tekið tillit til þess en það breytir samt ekki því að vél er vél og það almennt séð telst ekki gott að hækka etanólmagn í eldsneyti auk þess sem eyðsla eykst.

    Svo persónulega er ég á móti þessu en fæ víst lítið um það að segja verður allavega nóg að gera fyrir bifreiðaverkstæði í komandi tíð þar sem að tankar munu tærast hraðar auk þess sem eldsneytisrör munu gera það líka auk þess sem að innspýting gæti orðið fyrir áhrifum sjálf vélin mun að einhverju leiti sleppa smá af etanóli út í sjálfa vélarolíu bílsins svo það þarf að fylgjast betur með því svo auðvitað fyrir fólk sem á minna milli handa þá munu þau komast styttra á fullum tank en þau hafa gert áður auk þess sem fólk mun þurfa að fylgjast betur með vélarolíu bílsins, þetta hefur áhrif á alla sem nota eldsneyti í raun og veru.

  4. Þetta er efnahags/fjárhagsnýð. Þetta er aðför að einkabílnum. Þetta er aðför að einstaklingnum.

    Þetta er aðför að fólkinu sem vinnur lélegustu störfin á lélegasta kaupinu.

    Þetta er aðför að fólkinu sem vinnur mikilvægustu störfin hundruði kílómetra frá Reykjavík.

    Þetta er aðför að fólkinu sem heldur uppi lífi, verðmæta og nýsköpun hundruði kílómetra frá Reykjavík.

    Þetta er aðför að fólkinu sem býr úti á landi og finnst gaman að safna, sinna og eiga amk 1 fornbíl til þess eins að rúnta einhverja hundruði kílómetra að sumri til.

    Þetta er aðför að fjölbarnafjölskyldum sem búa úti á landi vegna þess að það er óðs manns æði að ætla að reka stóra fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu.

    Þetta er andfélagslegt. Þetta er félagsnýð. Þetta er aðför að þeim sem ekki búa við velmegun, og sérstaklega þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.

  5. Fréttin sleppir náttúrulega alveg að fara í muninn á etanóli og bensíni og líkja þessu að jöfnu.
    Etanól inniheldur hinsvegar bara helminginn af orkunni sem bensín gerir svo þetta er 5% hækkun á verði á bakvið tjöldin.

Leave a Reply