Sorpa er að fara að loka á Dalvegi, og miðað við minnisblaðið í fréttinni þá á að loka Jafnaseli og Sævarhöfða. Mér finnst það ekki ganga upp að sveitarfélög þ.e Garðabær / Kópavogur komist upp með það að þurfa ekki að veita landsvæði undir endurvinnslu.
Hvað finnst þér u/CumOnMyGf69420 ?
Ég bý þarna í hverfinu og mér finnst svo mikil fásinna að detta það í hug að planta endurvinnslustöð inní miðjuna á rógrónu íbúðarhverfi. Þetta myndi hafa mjög mikil áhrif á ásýnd hverfisins og myndi stafa af þessu mikil truflun. Það að þetta sé við hliðina á kirkjugarði, eins og margir eru búnir að benda á, er bara ein af mörgum ástæðum af hverju þetta er fráleit hugmynd.
Þetta er vond hugmynd á svo marga vegu að mér finnst óskiljanlegt að það hafi yfir höfuð verið stungið uppá þessu.
Nokkrir punktar af hverju þetta er svona slæm hugmynd:.
– Hliðina á kirkjugarðinn, með tilheyrandi ónæði fyrir þá sem eru að syrgja ástvini
– Hinum megin við götuna af grunnskóla hverfisins og íþróttamiðstöð hverfisins
– Myndi margfalda umferð inní hverfið, sem er þegar komin að þolmörkum
– “Lindakirkjuhringurinn” er mjög vel heppnaður og vinsæll göngu/hlaupa hringur í kringum kirkjugarðinn. 1.5km merktur hringur sem maður getur labbað/hlupið nánast án hindrana. Þessi vegur að sorpu myndi bæði þvera þennan hring og því valda truflunum fyrir útivistarfólk sem sækjir hringinn, en líka skemma ásyndinna á þessum hring í leiðinni þar sem stór partur af hringnum væri núna að labba framhjá Sorpu
– Útsýnið úr hlíðum Salahverfis er stórfenglegt. Að planta endurvinnslustöð beint í miðjuna á þessu útsýni væri mikil synd
– Var búinn að nefna þennan punkt í innganginum, en að hafa endurvinnslustöð í miðju íbúðarhverfi er svo mikil fásinna. Allar aðrar endurvinnslustöðvar eru af góðum ástæðum í iðnaðarhverfum, ekki miðjum íbúðarhverfum.
Mér finnst mjög ólíklegt að það verði að þessari hugmynd, enda eru íbúar í hverfinu brjálaðir og allar Facebook grúppur loga
Taka frekar pláss frá þessa ljóta ofvaxna golfvelli sem er hinumegin við götuna.
4 comments