eru vegna of mikillar fjölgunar fólki á Íslandi á stuttum tíma.

Mannfjöldi á Íslandi fjölgaði um 7.456 á milli 2021 and 2022 (https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/mannfjoldinn-1-januar-2022)

Ísland toppar þennan lista léttilega, en þeir eru með vitlausa tölfræði að einhverri ástæðu: https://en.wikipedia.org/wiki/List_of_European_countries_by_population_growth_rate

1990 voru uþb 254þús fólk á Íslandi. 2023 er uþb 387þús fólk á Íslandi sem er 52% hækkun á 33 árum, gaman að bera saman við restina af Evrópu (nb. tölfræðin á þessu korti er frá 1990-2021) https://www.reddit.com/r/MapPorn/comments/l0onk2/population_growth_rates_of_european_countries/

Ég hef ekki heyrt neinn vera að ræða um þetta vandamál og því langaði mig að heyra hvað fólki finnst um þetta. Ég vill leggja áherslu á að ég er að tala um of öra fjölgun fólks á stuttum tíma.

Það er eðlilegt að lítil þjóð eins og Ísland fjölgi hraðar en aðrar þjóðir, en við erum alls ekki að ráða við þetta ástand sem þjóð að mínu mati.

Edit: Leigumarkaðurinn er líka í hassinu útaf þessu.

17 comments
  1. Þetta er bara hárrétt hjá þér og það þarf grípa í taumana sem fyrst. Við ráðum ekki við svo mikla fólksfjölgun á svo skömmum tíma.

    Annars er ekki rétt hjá þér engin sé búin að vera að ræða þetta. Sigmundur Davíð er búin að tala um þetta í langan tíma.

    Mér fannst hann ekki cool í langan tíma svo fór ég að hlusta á það sem hann segir og ég verð að gefa karlinum að margt af því sem hann segir er hárrétt.

  2. Það hefur vísu verið mikil fólksfjölgun á Íslandi, þó fæðingartíðni hefur verið nokkuð lág og mest verið innflytjendur svo mögulega var ekki búið að sjá fyrir þörf á því plássi gæti ég ímyndað mér?

    Heilbrigðiskerfið er væntanlega vegna breyttrar aldurssamsetningar, þjóðin er að eldast þar af leiðandi líka þörf á því kerfi, en auk þess sem við sækjum heilbrigðisþjónustu mögulega meira en fólk gerði áður er ein hugdetta hjá mér.

    Fasteignaverð að mestu leiti tel ég vera afleiðing þess að við höfum ekki verið að byggja eftir þörf ekki nægilega gott aðhald í hagstjórn heldur óstöðugir vextir.

    Raun og veru er ekkert af þessu raunverulega beint bundið við Ísland, nema kannski með það að við byggjum ekki nóg, ég hef þegar byggt nokkur hús þó ég sé lattéleppjandi háskólanörd, svo ég hef skilað mínu hehe. En veit samt ekki þykir margt af þessu hefði verið hægt að koma í veg fyrir bara með góðri skipulagningu.

  3. >Það er eðlilegt að lítil þjóð eins og Ísland fjölgi hraðar en aðrar þjóðir

    Samkvæmt hverju? Finn ekki neina tölfræði um þetta.
    Að mínu mati eru alltof hár innflutningur á fólki, en það eitt og sér er ekki jafn stórt vandamál og hvaðan innflutningurinn kemur. Það er alltof hár mannfjöldi á Íslandi sem kann ekki einu sinni basic hluti eins og að flokka rusl. Hvernig ætti þetta fólk að kunna það ef það eru ekki endurvinnslustöðvar í heimalandinu þeirra? Var frábært að fara út með ruslið hjá pabba í nýju blokkunum hjá valsheimilinu, ruslapokar út um allt en gámarnir tómir. Er líka forvitinn hvort þið sáuð betlarana fyrir utan Hagkaup skeifunar og krónunar í Grafarvogi í morgun. Ísland verður ekki Ísland innan nokkura ára ef þetta heldur svona áfram, við munum kasta þessu öllu frá okkur.

  4. Þeir sem lobbýa fyrir þessu á þingi:

    * Samfylkingin
    * Vinstri grænir
    * Píratar

    Munið það í næstu kosningum.

  5. Ég hef mikið velt þessu fyrir mér. Hvernig stendur á þessari fjölgun? Eitt sem mér dettur í hug er ferðaþjónustan. Það er langt síðan þjóðin hætti að standa undir ferðamannastraumnum og þá þarf að flytja inn haug af fólki til vinnu. Er raunverulega einhver ávinningur af því að fá sem flesta til að ferðast hingað þegar ekki er hægt að þjónusta það nema með erlendu vinnuafli sem þarf sjálft þjónustu og innviði?

  6. heilbrigðiskerfið er líka að finna fyrir öllum túrismanum, það koma milljónir hérna yfir árið og það er alltaf x brot af þeim sem þarf lækna. Tala nú ekki um þegar rúta fer á hliðina eða eitthvað og allir þurfa fara í tékk því bílstjórinn og fyrirtækið hans eru fífl.

    Besta sem myndi gerast er ef túrisminn á Íslandi dræpist og færi aftur niður í það sem hann var. Húsnæðismál myndu batna, heilbrigðismál myndu batna. T.d. er bara mjög gott mál ef slegið verður á fingur flugfélagana með útblástur innan Íslenskrar lögsögu sem veldur því að flugferðir fara og túrisminn minnkar.

  7. Það er ekki búið að vera of mikil fjölgun fólks hér á landi. Það er búið að vera mikil fjölgun af aðfluttum Íslendingum en það er vegna þess að við búum við efnahagskerfi sem reyðir sig á aðflutt vinnuafl til að búa til hagvöxt.

    Það sem hefur gerst er að innviðir hafa ekki verið stækkaðir til að búa til pláss fyrir allt nýja fólkið í samfélaginu og það er þeim sem eru við völd að kenna en ekki fólkinu sem er að flytja til Íslands og búa til hagvöxt

  8. Fæðingatíðni á Íslandi er að dragast saman, trúlega vegna þess að sífellt
    fleiri eiga ekki pening fyrir því að vera með annað foreldrið heima, eða fólk
    eignast bara eitt eða tvö börn þegar hér áður voru það 3+ börn á fjölskyldu.
    Hagstofan og Alþingi hafa lengi vitað að ef ekki væri fyrir aðflutt fólk, þá
    yrði fólksfækkun á landinu. Sem þarf ekki að vera slæmur hlutur en Ísland hefur
    ekkert aðlagast þeim fjölda sem flytur hingað og samkvæmt Mbl. Að þá höfðu
    aldrei verið jafn margir innflytjendur að vinna á íslenskum vinnumarkaði og
    2017 og árið 2018 heldur vísir því sama fram. Gallinn er sá að þessi þróun
    hefur ekkert breyst.
    2017: [https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/11/10/innflytjendur_aldrei_fleiri/](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/11/10/innflytjendur_aldrei_fleiri/)
    2018: [https://www.visir.is/g/20181915117d](https://www.visir.is/g/20181915117d)
    2022: [https://samstodin.is/2022/11/aldrei-fleiri-starfandi-innflytjendur/](https://samstodin.is/2022/11/aldrei-fleiri-starfandi-innflytjendur/)
    (Gunnar Smári vitnar ekki í heimild í þessari frétt hjá Samstöðinni, þannig
    dragið ykkar eigin ályktanir).
    [https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/buferlaflutningar-2022/](https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/mannfjoldi/buferlaflutningar-2022/)

    Hérna segir Hagstofa að: ,,Árið 2022 fluttust óvenju margir til Íslands og
    hafa aðfluttir **umfram brottflutta** aldrei verið fleiri á einu ári eða 9.764
    manns. ”
    En ef það er (segjum) 30 prósent plús fólksfjölgun á milli ára og mikið (ef ekki megnið af þeim fjölda) eru innfluttir, þá spyr maður sig auðvitað spurninga. Er þetta allt vinnandi fólk? Er helmingur börn? Eru þau bara að koma hérna til að hanga á bótum? Lærir meirihlutinn íslensku? Þarf að óttast um íslenska menningu? Afhverju þarf svona marga Thailenska
    matsölustaði, er pylsa ekki nógu góð? En auðvitað, eins og OP benti á, þá hefur Ísland ekkert aðlagast að þessum fjölda. Það vantar leikskólapláss, leiguhúsnæði, betri heilbrigðisþjónustu o.s.fr. Gjörsamlega glatað og við höfðum heil langan tíma til að aðlagast en gerðum ekkert.

    En þetta er þó allt í lagi, Hagstofa áætlar að ekki nema 460.000 manns muni búa hér árið 2069 (miðspá) en 500.000 manns fyrir 2055 í háspá.. /cry

  9. Jebb voða skrítið að sjá fólk heimta endalausan innflutning á fólki hingað og svo væla um að það fái ekki þjónustu og allt sé svo dýrt, sérstaklega húsnæði, þetta er það sem þau vildu.

  10. Cool gott að vita að ég get klínt öllum vandamálum samfélagsins á úglenska fólkið.

    Meikar sense að það sé þeim að kenna að allir lækningarþjónar eru a flýja land. Það er svo skrítin likt af þeim skilluru.

    Svo þora sveitafélögin ekki að byggja meira út af því að allt þetta innflutta fólk tekur upp svo mikið pláss og er alltaf fyrir bygjandikallamönnunum.

    Nota bene, verðbólgan er líka innflytjandi!

    Takk OP fyrir þetta linurits innlegg. Þetta fær mig alveg til að gleyma þeirri ábyrð sem ríkistjórnin hefur á núverandi ástandi

    EDIT: Sorglegt hvað ég þarf að scroll-a framhjá mörgum skitzo innleggum áður en ég sé enhvað sem getur kallast eðlilegt comment.

  11. HEyrðu NEI NEI!

    Skulum halda fund “leiðtoga” sem kostar okkur 2.5milljarða! Og að auki skulum við óvænt gefa Ukraniu spítala sem er hægt að nota í stríði. Veit einhver hvað eitt svoleiðis kostar?

    Bara spyr.

    ps. Hefur þetta fólk ekki heyrt um Teamspeak eða skype?

  12. True og ef þú kaupir 70 miljón kr hús þá þarftu að borga 500 eða 700 miljónir til baka í lán glæsilegt ástand

  13. Þessi hraða fólksfjölgun í hagstofutölunum* er drifin áfram af innflutningi fólks innan EES sem kemur hingað til að vinna. Þetta er að uppistöðu barnlaust fólk (margir stofna svo reyndar fjölskyldur hér eftir einhvern tíma) á þrítugs- og fertugsaldri sem veldur ekki sérstöku álagi á leikskóla eða heilbrigðisþjónustu og skaffar ríkinu mun meiri tekjur en útgjöld. Vissulega þarf þetta fólk hins vegar húsnæði og samgöngur. Okkar góðu leiðtogar hafa bara ekki staðið sig í því að styrkja kerfin í samræmi við þörfina.

    *Það er vitað að hagstofutölurnar ýkja fólksfjölgunina, en álitamál hversu mikið.

  14. árgangurinn á íslandi hefur verið ca. 5000 börn, þá hafa um 2500 manns dáið á ári, svo eðlileg fjölgun væri ca. 2500, en svo bætist ofan á það meira en 5000 manns á ári frá og með 2016. Fólksfjölgunin hefur sumsé verið uþb þreföld í öll þessi ár og á meðan sváfum við á verðinum..

  15. er það út af of fjölgun þjóðfélagsins eða er það Alþingi að svelta allar almennings þjónustur?

    eins og heilbrigðiskerfið, leikskólana, samgöngur?

    ofan á það er ekkert gert til að hemja okurverðin á “frjálsa markaðnum” sem þýðir að leiguverð (og fasteignaverð) geta verið hvað sem eigandanum sýnist

    held ég hafi líka verið að lesa grein þar sem var talað um að það væri lækkun í fjölgun Íslendinga síðustu 2-ish árin?

    þegar þjóð hættir að fjárfesta í lýðið þá hættir lýðið að virka

  16. fund “leiðtoga” sem kostar okkur 2.5milljarða! Og að auki skulum við óvænt gefa Ukraniu spítala sem er hægt að nota í stríði. Veit einhver hvað eitt svoleiðis kostar?

    Bara spyr.

    ps. Hefur þetta fólk ekki heyrt um Teamspeak eða skype?

Leave a Reply