[Viðtalið](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-05-19-menn-reyna-ad-drepa-dyrid-strax-allt-vidtalid-vid-kristjan) í fullum skrúða. Hvað segiði kæra íslenska internet, með eða á móti? gamli skólinn eða nýi skólinn, hvað er að gerast og hver er hvað?

7 comments
  1. Mest af þessari gagnrýni er vegna veiða á Langreyð, við sjáum það aldrei hérna á Íslandi. Mér finnst við missa: “þetta er hefð eða menning”. Þegar aðal gagnrýnin snýst um veiðar á hvölum sem enda í hundamat hinumegin á hnettinum. Mér finnst líka lélegt að bera þetta saman við fugla/hreindýraveiðar.
    Ég myndi vilja að við héldum okkur við hrefnu og kannski veiða smáhveli, eða bara hætta þessu.

  2. Bara hætta þessu rugli. Við myndum aldrei samþykkja að elta hross á fjórhjóli, skjóta skutul í það og draga það nokkra kílómetra lifandi. Ég skil að þetta hjálpaði okkur að lifa af öldum saman en þetta er bara orðinn óþarfi og snýst bara um peninga.

  3. Ég hef ekki sérstaka skoðun á því hvort hvalveiðar séu siðferðislega verri en annað dýraát, en mér finnst mjög skrítið að ríkur kall með tengsl við Sjálfstæðisflokkinn fái að handstýra sjávarútvegsráðuneytinu og hundsa lög til þess að stunda fokdýra hobbíið sitt, sem í þokkabót veldur Íslandi töluverðum álitshnekki.

    Því þetta er sannarlega bara áhugamál. Hann tapar peningum á þessu. Það gengur ekkert að selja þetta kjöt. Þetta er ekki bissness. Hvalir eru veiddir því Stjána L finnst það töff og macho. En i leiðinni afhjúpar hann alveg ferlega mikið um hvernig þessu landi er stjórnað.

  4. Það er miklu meiri peningur i hvalavernd en hvalveiðunum sjálfum, enda löngu búið að henda staðreyndunum undir rútuna með kostuðum rannsóknum til að fá meiri samúðarstyrki til friðunarsamtaka. Hvalur getur verið allt að 60 tonn, er með heitt blóð svipað og við og borðar 4-5falt per kg á við td þorsk, það er því auðvelt að tapa jafnvæginu eins og td Ástralir sem hafa gengið alltof langt í því að verja ákveðna fiskistofna á meðan þeir veiða aðra og eru við það að missa stjórn á jafnvægi fæðukeðjunnar í sjónum í framhaldi.

  5. Finnst þetta fáránlegt að einn ríkur náungi með vini á réttu stöðum fái að stunda iðnað sem að er það óvinsæll alþjóðlega að hann veldur þjóðinni í heild skaða í utanríkismálum.

    Ef að þetta væri eitthvað sem að skilaði einhverju stóru í efnahag þjóðarinnar þá kannski myndi ég skilja þetta en vera pirraður.

    En það virðist vera að veiðarnar og salan á kjötinu komi í besta falli út á núlli og það tekur óratíma að selja vöruna og koma henni á markað. Þannig að eftirspurnin er ekki mikil.

Leave a Reply