Ríkis­borgara­rétturinn veitir Pus­sy Riot mikil tæki­færi – Vísir

3 comments
  1. Ég er frekar stolltur af því að við höfum geta brugðist hratt við, og gert okkar í því að veita fólki frelsi og tækifæri til að gefa sem mest af sér til samfélagsins þó svo að það sé ekki endilega samfélag þess lands sem það fæddist í þar sem það samfélag er ekki eins frjálst og virkjandi og við reynum að hafa það hérna á Íslandi.

    Ég vinn við vinnu sem flytur inn mælanlegt magn af sérfræðingum frá Evrópu og Ameríku. Það er mestmegnis fólk sem vill setjast að hér á landi, þar sem við borgum ekkert alveg eins vel og svipaðar stöður úti í löndum myndu gera – samkeppnishæfni okkar er haldið uppi af því að Ísland er enn aðlaðandi land þegar það er borið saman við marga aðra staði í vestur Evrópu.

    Ég er því ekki alveg eins stolltur af því að allt þetta fólk sem ég vinn með fær ekki þessi sömu tækifæri. Þau fá reyndar tækifæri til að sanna sig fyrir Alþingi, og fá að fara fram úr ferlinu eins og við setjum það upp fyrir almenna umsækjendur og stundum hefur það gengið, en oftast ekki. Mér finnst eitthvað pínu sárt við það að aðgengi fólks að þessu frelsi, og tækifærum, er mismunað eftir því hvaða Íslendigna það þekkir.

    Þetta er kannski enn ein útgáfan af óréttlæti sem ég er eitthvað skrítin fyrir að geta ekki litið fram hjá – þetta er algerlega ekki mesta óréttlætið sem fyrirfinnst hérna á Íslandi. En ég get ekki litið hjá því að mér finnst þetta óréttlátt kerfi sem mismunar fólki eftir því hvaða Íslendinga það þekkir frekar en nokkuð annað.

    Kerfið ætti bara að virka sem skildi, frekar en að virka sem skildi til að halda fólki í burtu þangað til að réttu Íslendingarnir mæta til að hjálpa því fram hjá almenna kerfinu.

Leave a Reply