Reykvíkingar búnir að fá nóg ljótleikanum: „Það ætti nánast að láta hana borga skaðabætur“

11 comments
  1. Þetta get ég tekið undir. Er Ísland ekki nógu grátt mest allt árið? Umhverfið verður að vera hlýrra og manneskjulegra hérna!

  2. Það má líka minnast á að það sem eyðileggur allan arkitektúr borgarinnar eru architectural visualization renderingar þar sem að sólin skín alltaf úr réttri átt og öll lýsing er óaðfinnanleg, öll yfirborð glansa fullkomlega og allt er fullt af fullkomnum trjám.

  3. Guð, hvað það er kominn tími á endurreisnarstefnu í arkitektarmálum. Einhverskonar bakslag gegn þessum gífurlega fráhrindandi, ómannúðlega og fjandsamlega arkitektúr sem okkur hefur verið gert að þjást af núna í lengri tíma.

  4. Það sem mér þykir alltaf kannski mest spes við arkitektúr á Íslandi er þetta með að vera með flöt þök vel vitað að ákjósanlegast er að hafa halla, með lektum og bárujárni. Svo ekki sé talað um er það fallegra. Samt þá er litaval voðalega eitthvað einsleitt, ef ég væri að hanna hús í dag myndi ég horfa til Svissnesks arkitektúrs og gamla sveitserstílinn sem var hér ríkjandi áður þykir mér fallegastur. 🦊

  5. Það má þá líka tala um útlit þjóðbúningsins í dag. Peysudagar hjá Verzló og Kvennó er fastur liður en allar stúlkurnar vilja bara fá 20 aldar búning(ekki það sama og peysuföt) í svart og hvítu (með smá gulli) og sleppa skotthúfunum. Vilja enga liti. Eins litríkir og fjölbreyttir sem þessir búningar geta verið!

  6. Bara burt með þessu svörtu og gráu kassa. Mér er alveg sama þó svo það sé klætt með stuðlabergi eða einhverju öðru rándýru drasli sem lítur betur út þar sem það á heima, í náttúrunni. Þessi “náttúru-innblástur” er eins og veðrið í dag, algjör drulla. Þegar spurt var “when are they going to finish painting the new student housing?” NEI, nei, hrá kassalöguð steypa eins póst módernismi og póst WWII Rússland eru okkar ær og kýr í dag. Flott

  7. Ég er alltaf minntur á redditorinn sem sagði að ef við færum að byggja upp of hratt og ódyrt þá myndum við bara enda uppi með kommablokkir.

  8. Það er svona þegar arkítektar eru of glaðir með sig til að hlusta á umhverfissálfræðina.

Leave a Reply