
Ég lenti í því í vetur að festa mig sem olli því að plasthlíf undir vélinni brotnaði af og sleit kapalinn fyrir annað stefnuljósið í framstuðaranum. Síðan hefur endinn á kaplinum líklega farið undir dekkið á ferð og við það rifnaði hann úr stefnuljósinu og tók peruna og stæðið með sér.
Ég tók ekkert eftir því.
Núna vantar mig perustæði og tengið á kapalinn. perustæði kemur kannski með perunni ef ég kaupi frá umboðinu en tengið á kapalinn er ekki hægt að fá. Ég þyrfti að kaupa allt rafkerfið í stuðarann eins og það leggur sig. Sem er dýrt og algjör óþarfi þegar hægt er að framlengja kapla auðveldlega.
Svo mér datt í hug að fá að klippa þetta af öðrum bíl til að setja í minn frekar.
En ég er ekki viss við hverja ég ætti að tala til að kanna með svoleiðis, eruð þið með einhverjar hugmyndir?
Edit:
Update: Perustæðið fylgdi með perunni, svo ég keypti hana frá bílabúð Benna, gamla umboðinu. Enginn gat reddað mér tenginu á móti því og ekki séns að fá að vita partanúmerið á því til að finna það sjálfur. Allir sögðu bara “nei, við eigum þetta ekki”
Ég talaði við alla sem ég fann og vissi af.
Núverqndi umboðið, Brimborg, gat reddað mér öllu rafkerfinu í stuðarann en ég vildi það helst ekki enda var það 30 þúsund og ég þurfti bara smá part af heildinni.
En svo var mér bent á hér á https://www.fastparts.is/ svo ég sendi á þá. Ég fékk mjög fljótt svar með tilboði í varahluti í það sem ég lýsti og var það allt rafkerfið í stuðarann. Tvö notuð kerfi sem ég gat valið um, með myndum af þeim til staðfestingar.
Ókei snilld. Ég ákvað að kaupa annað þeirra enda var það bæði bara 1/3 af verðinu hjá umboðinu og afhendingartíminn miklu styttri. Ég mun alltaf versla við þá héreftir þegar mig vantar eitthvað í bílinn minn!
Power of Reddit!
10 comments
[https://partasala.is](https://partasala.is), líklega best að hringja
Þræða partasölurnar. Ef þú átt algengan bíl þá ætti þetta að vera lítið mál.
Þú leitar bara uppi partasölum til dæmis netpartar og fastparts getur ennþá sent fyrirspurnir á vöku en færð ekki lengur að fara í portið. En alveg klárlega gætu fastparts reddað þér. 🦊
Fullt af bílum við Keflavíkurflugvöll sem þú getur skoðað. Ef þú nennir ekki alla leið þangað, og ert djarfur, þá geturðu skoðað bílana í bílakjallaranum í Kringlunni í kringum 18. Fullt af bílum og fólk skilur þá oft eftir í talsverðann tíma.
Úr öðrum bílum.
Ef bílinn er japanskur, mæli ég með japönskum vélum í Hafnarfirði
Ef staðir eins og ab varahlutir eru ekki með neitt mæli ég með að fá hann bara sendann utanlands.
Alvadi eru geggjaðir.
Farðu í vöku
er ekki hægt að redda þessu með vír, lóðbolta, herpihólkum og límkítti?
Það er bílakirkjugarður á iðnaðarsvæðinu í Hafnafirði, rétt hjá ökuskóla 3. Veit ekki hver á lóðina, er þú finnur það út væri ég til í að fá að vita