Hefur ítrekað gert athugasemdir við búkmyndavélanotkun lögreglu – RÚV.is

6 comments
  1. Hvernig er það ekki brottrekstrarsök að það sé slökkt á búkmyndavélinni þinni ef þú átt í samskiptum við almenna borgara?

  2. “Fréttastofa RÚV óskaði eftir því í mars að Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu, NEL, afhenti allar ákvarðanir sínar á þessu og síðasta ári.”

    “Nefndin hafnaði beiðninni og sagði fyrirséð að afgreiðsla á beiðninni yrði umfangsmikil og tafsöm í framkvæmd. Auk þess væri nánast ómögulegt að gera ákvarðanirnar þannig úr garði að ekki væri hægt að rekja til þeirra sem ættu hlut að máli. Var það því mat nefndarinnar að ekki væri fært að verða við henni”

    “Fréttastofa kærði niðurstöðuna til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem gerði nefndinni að afhenda ákvarðanir sínar. Í þeim sést meðal annars að NEL hefur alloft þurft að minna lögreglumenn á að þeir eigi að hafa kveikt á búkmyndavélum sínum, líka áður en aðgerðir hefjast á vettvangi.”

    Áhyggjuefni að NEL hafnar beiðni fjölmiðla um ákvarðanir nefndarinnar vegna meints “umfangs”.

  3. Eina almennilega útfærslan á svona er að vélin byrjar að taka upp um leið og hún er tekin úr hleðslu og hættir ekki fyrr en hún er sett aftur í hleðslu. Einnig að lögreglan hafi ekki aðgang til að eyða upptökum bara sjá þær

  4. Er ekki hægt að henda í eitt stórt hóp mál gagnvart lögreglunni? Skattgreiðendur að borga fyrir allar þessar myndavélar sem þeir nota ekki trek í trek!

    Það er fullt af svona málum þar sem vantar búkmyndefni! Þar sem lögreglan brýtur á saklausu fólki!

Leave a Reply