>„Þeir sama hafa aukið kaupmátt sinn hvað mest á undanförnum misserum, við sjáum það á nýjustu álagningu Skattsins fyrir 2022, eru ekki síst tekjulágir hópar og það er mjög mikið ánægjuefni. Okkur hefur tekist að auka kaupmátt og stöðu þeirra sem eru neðst í tekjustiganum. Það höfum við gert mjög myndarlega á undanförnum árum, líka í gegnum skattkerfisbreytingar og ýmsar tilfærslur, eins og bótagreiðslur sem ríkið stendur undir. þannig það er ekki hægt að segja að þessir hópar hafi verið skildir eftir því aðrir hafa það gott,“ segir Bjarni.
Getur einhver hérna reynt að stálmanna þetta sjónarmið? Nú er ég ekki vel að mér í hagfræðinni — hvernig getur hann sífellt haldið því fram að tekjulágir hafi það betra en áður þrátt fyrir að fátækt fólk upplifir sig eiga mun erfiðara með að eiga fyrir nauðsynjum en áður?
Og plís ekki koma með eitthvað skítkast í Bjarna, þó svo að freistingin er mikil. Reynið frekar að ústkýra sjónarmið hans heiðarlega. Ég reyna skilja.
Mér finnst fyndið hvernig “tekjuhæstu borga lang mestu skattana” en samt svipaða prósentu og allir aðrir. Hinsvegar þegar kemur að launahækkunum hjá þeim tekjuhæstu upp á hundruð þúsunda þá eru þeir bara að fá svipað og allir aðrir, prósentulega séð.
*Það er þetta, það er ofhitnun í íslenska hagkerfinu, það er of mikill hagvöxtur, of mikil einkaneysla. Of mikið að gerast þannig að það standi undir sér. Þannig brýst þetta út í verðbólgu,“ segir Bjarni.*
Sem er hægt að eiga við með því að hækka skatta á fólk og fyrirtæki og nota peninginn til að greiða inn á Erlendar skuldir landsins. Bókstaflega taka pening út úr hagkerfinu.
Planið er augljóslega að bíða í Garðabæ eftir að þetta lagist af sjálfu sér og ekki væri verra ef launakostnaður fyrirtækja leiðréttist í leiðinni. Nú vantar bara að fá verkalýðinn í langtímasamninga enda bera þau ábyrgð á þessu öllu og við erum [góð](https://media.tenor.com/evJYM-uYrVsAAAAd/shaun-of-the-dead-simon-pegg.gif).
– Ranti lokið
Ríkur stjornmálamaður neitar að hækka skatt á sjálfan sig.
Leiðin upp úr þessu ástandi er ekki með því að skatta almenna borgara sem eru nú þegar skattpíndir.
BB og öll hans ætt flokkast sem þau tekjuhærri hverjum sem dettur í hug að hann eða hans hyski af landráðamönnum/konum komi til með að hækka skatta á sig og sitt fólk ætti að láta athuga hvort ekki sé allt í lagi í hausnum á sér
6 comments