Kári Stefánsson segir tími til kominn að sjómenn rísi upp gagnvart stórútgerðinni í ræðu á Sjómannadeginum í Grindavík.

Það er kominn tími á sjómannabyltingu í íslensku samfélagi


7 comments
  1. Hvet fólk að skoða greiningu Indriða Þorlákssonar, fyrrverandi ríkisskattstjóra til margra ára, um arðsemi auðlindarinnar. Sagt á ókurteisann hátt; það er verið að taka okkur í r********

    “MILLJÓN Á MANN

    Ég hvet fólk til að lesa greinar Indriða Þorlákssonar, hagfræðings, um veiðigjöld og forsöguna. Þar eru sláandi upplýsingar. Árin frá Hruni (2008-2014) eða á sjö árum, áætlar hann að hreinn hagnaður útgerðarinnar hafi numið nærri 300 milljörðum króna (289 mrd). Þetta er hagnaðurinn af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar sem þjóðin fékk enga hlutdeild í. Þetta er, sum sé, nærri milljón á hvert mannsbarn í landinu. Milljónin sem mannsbarnið fékk EKKI.

    Ég skora á hvern Jón að máta þessar upplýsingar við morgunverðarborðið. Jón fékk ekki þessa miljón. Ekki heldur hún Gunna, sem grúfir sig ofan í Fréttablaðið, né heldur Svana og Siggi sem eru hálf falin á bak við Seríóspakkann og mjólkurfernuna. Þau fjögur fengu sum sé EKKERT af þeim 4 milljónum sem er þeirra hlutdeild í hagnaðinum af ,,sameiginlegri auðlind þjóðarinnar”.

    Athugið, að þetta eru stærðirnar eftir að útgerðin hefur borgað skitin 10% hreinhagnaðarins í veiðigjöld. Sá aur fór allur í að greiða kostnað sem hið opinbera (það er að segja, VIÐ) þurfti að punga út, í þjónustu við veiðar- og vinnslu. Það fór sem sagt ekkert til þjóðarinnar. Ekki kökusneið. Ekki brauðmoli. Ekkert.

    Takk fyrir ekkert.

    http://herdubreid.is/veidigjold-2015-fyrsti-hluti/

    http://herdubreid.is/veidigjold-2015-annar-hluti/

    http://herdubreid.is/veidigjold-2015-thridji-hluti/

  2. Erlendis er sjávarútvegurinn almennt niðurgreiddur af stjórnvöldum sem þýðir að hagnaðurinn er neikvæður og þegnar þessara landa borga aukalega í skatt til að halda þessu batterí gangandi. Frekar er ég til í þetta fyrirkomulag sem skilar miklum tekjum til landsins og ríkisins.

  3. Frá árinu 2015-2019 greiddu sjávarútvegsfyrirtækin 43 milljarða í tekjuskatt.

    Í mars á þessu ári greiddu þau 1.852 milljónir í veiðigjald sem er met frá því að það var tekið upp

    Þau hafa greitt til eiganda sinna 103 milljarða í arð á tímabilinu 2010-2019

    Þetta eru allt sturlaðar upphæðir, note bene þá er ekki talið inní þetta staðgreiðsla af launum, tryggingagjald og lífeyrissjóðsgreiðslur af launum, en þessi fyrirtæki eiga líklega einu stærstu hlutdeild í þeim greiðslu borið saman við aðrar starfsgreinar.

    Nú er spurningin, er rétt að eigendur fái að njóta þess ávinningsins sem þeir fá fyrir að halda úti útgerð.

    Skoðum þetta frá tveimur sjónarhornum, eiganda og almennings

    Eigendur segja að þeir sé í áhætturrekstri, sem allur fyrirtækjarekstur er, og eiga að rétt á þeim ávinningi sem fyrirtækið skilar. Það eru þúsundir starfsmanna sem treysta á að fyrirtækið sé rekið vel þannig að starfsöryggi þeirra sé tryggt. Hluti af hagnaðinum er varið í frekari uppbyggingu í greininni, betri búnaður fyrir starfsfólk, kaup á nýjum flota og nýsköpun. Það er ekki hægt nema að greinin skili markvissum hagnaði.

    Eigendur hafa aðgang að auðlind sem er í eigu Íslendinga.

    Almenningur lítur á auðlindina sem sína og eiga að fá hlut af henni, sérstaklega þar sem hún skilar svona svakalegum hagnaði. Það er ósanngjarnt að hagnaðurinn skiptist á svona fáar hendur.

    Nú ef við ætlum að “taka” auðlindina til okkar og gera það ómögulegt fyrir eigendur fyrirtækjanna að borga sér arð þá er eitt sem gerist alveg 100%. Eigendur fyrirtækjanna selja flotan, loka vinnslunum, segja öllum upp og skila kvótanum til Ríkisins.

    Það er alveg á hreinu að það er enginn að fara halda úti rekstri í sjávarútveginum ef það er ekki séns að græða á því.

    Hinsvegar má færa rök fyrir því að hagnaðurinn er mjög mikill og ætti að hækka skatta á þau, en hvernig á að gera það? Setja þak á hagnaðinn? Það yrði farið með það fyrir dómstóla þar sem það yrði verulega ósanngjarnt gagnvart örðum greinum.

    Ég er alveg á því að sjávarútvegurinn er að græða helvíti mikið og það má alveg skoða hvernig hann getur skilað meira sanngjörnu gjaldi til Ríkis.

    Á sama tíma er ég gapandi hissa á hvernig margir tala um hvernig eigi að taka allt frá þeim og allur hagnaður fari til Ríkis. Þegar ég spyr á móti “ætlar þú þá að vera háseti á ríkisreknum trillum?” Þá byrja allir að froðufella.

    Mæli með að fólk skoði aðeins hvaðan peningarnir streyma inní ríkissjóð og taki með greinar sem eru bein afleiðing þess að við erum með einn sterkasta sjávarútvegi í heimi.

    Sjávarútvegurinn okkar er ekki fullkominn en hann skilar stórum upphæðum til ríkissjóðs en skattinnheimta verður að vera í samræmi við það sem gengur og gerist í öðrum greinum. Það er bara common sense en common sense er alls ekki common í dag.

  4. Lymskulega orðað hjá honum blessuðum, til þess eins að forðast málssókn.

    Auðvitað er þetta er rétt. T.d. var í fréttum fyrir allmörgum árum að Samherji selur dótturfyrirtæki sínu á meginlandinu aflann á u.þ.b. þriðjungi á markaðsverði. Þannig rýrnar aflahlutur skipverja, tekjur ríkis og sveitarfélaga og gróðinn fer úr landi.
    Skipverjar skráðir sem lausráðnir svo hægt sé að láta þá taka pokann ef þeir rífa kjaft.

    Framsal kvóta eins og það sé eign og erfðaréttur viðkomandi er það rotnasta sem sést hefur í íslenski þjóðfélagi. Samt er af nógu að taka, í landi þar sem sömu ættirnar sitja að völdum og gerðu um þar síðustu aldamót.

Leave a Reply