Hvað finnst ykkur um Hagga í Hagkaup? Lukkudýr Hagkaups, bónus hefur grísinn og Hagkaup hefur Hagga.

Þykir þó eins og hefði mátt koma með betra nafn persónulega hehe en sá skilti í gær þar sem Haggi var á skilti ávaxtastund og var líka auglýsing engu að síður einungis sex áhorf á þetta myndband hér sem ég deili og sennilega öll frá mér. Þykir Haggi vera mjög mikið krútt sjálf. 🦊

4 comments
  1. Þetta er viðbjóður og ótrúlegt “cringe”, ég man ekki íslenskt or yfir þetta, frá A-Ö. Veit ekki alveg hvaða markhóp þetta á að höfða til, en ég giska að það sami aldurhóður og eru Hvolpasveitar aðdáendur.
    Bónus grísinn er merki bónus, er nátla Spari Grís því þú sparaðir á að versla þar sem er mjög rökrétt markaðssetning og yfir allt flott hugmynd sem var ekki ofnotað. Ég sé ekki alveg tengingu á ref og Hagkaup nema kanski að eigendur Hagkaupa séu lævísir refir í hænsahúsi.

  2. Þetta minnir mig á úlfin sem Bilka í Danmörku er með. Á sunnudögum er hægt að fara í Bilka með börnin og þau geta fengið úlfapoka frá úlfinum Billie og ég held það sé líka einhver klúbbur. Þetta dregur foreldra að á sunnudögum og svo versla þau í leiðinni. Kannski eru þeir í hagkaup í einhverjum svipuðum hugleiðingum, draga fólk að í gegnum börnin þeirra :p

Leave a Reply