Dreifing skattbyrði eftir tekjutíundum

3 comments
  1. >Út­svar er flatur skattur sem **leggst jafnt á allar tekjur** og jöfnunar­hlut­verk þess kemur í gegnum ríkið þegar það á­byrgist per­sónu­af­slátt til greiðslu út­svars.

    Þetta er einfaldlega bara rangt

    [https://www.skatturinn.is/einstaklingar/skattar-og-gjold/tekjuskattur-og-utsvar/](https://www.skatturinn.is/einstaklingar/skattar-og-gjold/tekjuskattur-og-utsvar/)

    >Á skattskyldar tekjur einstaklinga utan rekstrar, **aðrar en fjármagnstekjur**, er annars vegar lagður á tekjuskattur til ríkisins samkvæmt lögum þar um og hins vegar útsvar til þess sveitarfélags sem maður er búsettur í

    Held nú að ríka fólkið hafi það bara drullu gott.

  2. Lol þetta er eldgamalt.

    https://www.vb.is/frettir/efri-helmingurinn-greidir-99-tekjuskatts/

    Hérna eru nýjar tölur.

    Eins og við sjáum þá er ríkasta tíundin að greiða 50% af tekjuskatti til ríkisins. Ríkari helmingurinn greiðir 99% af honum.

    Tekjuhæsta fólkið heldur þessu samfélagi gangandi augljóslega og í anda þess er það ekki tilvalið að þau bjargi okkur úr þessum vanda? Þau eru augljóslega hæfileikaríkasta fólk landsins, hvaða annað fólk getur jafn auðveldlega tekið á sig meiri byrðar. Ef eitthvað þá sjá þau hvata til að skapa enn meiri verðmæti. Væg skattahækkun á tvær Tekjuhæstu tíundirnar myndi stoppa upp í stóran hluta af fjárlagahallanum og draga úr verðbólgu. Hverju munar um að greiða 99% eða 99,7%…

    Þau hafa núþegar hækkað afkomuspár ríkisins um 90 milljarða á árinu. Örlítil skattahækkun og 120 milljarða hallinn í fjárlögum er horfinn

    Það þýðir lítið að hækka skatta á neðri helming landans. Það er augljóslega fólk sem á ekki krónu með gati þessa dagana og kjósa örugglega pírata eða flokk fólksins. Þau lifa bara á dugnaði þeirra duglegu.

  3. Finnst þetta svolítið óskýr framsetning. Neðsta tekjutíundin hefur neikvæða skattbyrði, svo væntanlega er verið að horfa á eitthvað meira en bara tekjuskatt/persónuafslátt og fjármagnstekjuskatt/frítekjumark. Þarna hljóta að vera einhverjar bætur eins og barnabætur eða eitthvað slíkt. Það er ekki skýrt hvað það er. Þarna er heldur ekki tekið tillit til virðisaukaskatts sem er stærsta tekjulind ríkisins og leggst ekki jafn á tekjur hverrar tíundar.

Leave a Reply