Getum semsagt sameinað Krónuna og Nettó í eitt undir nafninu Krettó? Það eru nákvæmlega sömu verðin í þessum búðum á nær öllum nauðsynjavörum, hvernig má þetta vera? Alltaf hef ég staðið í þeirri trú að þetta væri virkur samkeppnismarkaður 😞

7 comments
  1. Fyndna er, ég notaði Verðgáttina í gær og gerði svona módel af innkaupakörfu.

    Bónus endaði með dýrustu körfuna. Af 40.000-45.000 matarkörfu endaði Bónus ca 1.000 krónum dýrari en Krónan og 500kr dýrari en Nettó.

    Um leið og maður fer útfyrir matarinnkaup ASÍ hættir Bónus að vera ódýrastur.

  2. > Alltaf hef ég staðið í þeirri trú að þetta væri virkur samkeppnismarkaður 😞

    Danir einokuðu ísland þangað til við fengum sjálfstæði. Við sýndum þeim að við getum sko alveg séð um okkar einokun sjálf!

  3. Og við þurfum að taka þátt í samráðinu, við sem greiðum í lífeyrissjóði amk, því lífeyrissjóðir eiga hluti í dagvöruverslunum og reyndar flestu því sem hægt er að benda á. Peningarnir sem eru týndir af okkur í sjóðina og við höfum nákvæmlega ekkert að segja um hvernig eru notaðir fara í þetta.

  4. Alveg ótrúleg tilviljun hvernig krónan lækkar verð á jarðarberjum í svipað verð og bónus rétt fyrir könnun og er svo fyrirfram búinn að ákveða að þeir þurfi bráðum að hækka verðið aftur, því gæðin eru nefnilega svo góð.

Leave a Reply