„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“ – Vísir

8 comments
  1. Neineinei bara smá djókur!.. helvítis góða fólkið, það má ekkert lengur!

    En hvernig er það, eru þeir bara ákærðir fyrir þessi ummæli? Ekki ákærðir fyrir þessi ummæli OG þá staðreynd að þeir voru búnir að safna sér vopnum. Sem er stóru skrefi gengið lengra

  2. > “Ég elska óreiðu. Fólk má deyja mín vegna. Varla til sú manneskja sem hefur sýnt mér kærleika nokkur[n] tímann um ævina. Fólk almennt er viðbjóður. Plága. Djöfull tek ég marga með mér þegar að því kemur”

    fokk. ég get ekki lesið lengra en þetta. fæ bara illt í magan og við það að tárast andjóks. og fólk spyr svo af hverju það skyldi enn þurfa pride mánuð eða black history mánuð osfrv ef það eru ekki til fordómar lengur? þessar pöddur í mannslíki eru ástæðan. ég skil ekki hvernig það er hægt að hafa svona mikinn hatur í sér. 🙁

  3. Þetta verður make or break dómsmál hér á Íslandi í mínum huga. Hérna er allt til staðar nema verknaðurinn og ef það er ekki hægt að stoppa þetta þá, þá verður það aldrei hægt.
    Svo skal ég alveg trúa þeim þegar þeir segja að þeim hafi aldrei verið sýndur kærleikur. Við höfum séð það alveg nógu oft núna það er nóg af fólki á Íslandi sem fór á mis við kærleika og öryggi í lífi sínu og hefur fyrir vikið engan í sjálfum sér. Hvenær er öruggt að hafa fólk sem hafa sýnt svona vilja frjálst? Eftir 5 ár á skilorði? 3 í fangelsi?
    Ég vona innilega að það verði langur dómur í þessu og sálfræðilegur bati verði skilyrði fyrir lausn.
    Annars höldum við bara áfram að telja niður í ódæði og teljum bara hraðar…

  4. Eftir þennan lestur finnst mér það vera helvíti óábyrgt af Sveini Andra að segja opinberlega að þessi samskipti höfðu verið í einhverjum hálfkæringi.

  5. u/DTATDM

    Mig langar að verja þig aðeins. Mig grunar að fólk sé að misskilja þig svolítið. Og þú aðra. Vandinn liggur í því að þú og aðrir eruð ekki sammála um það sem hefur ekki verið nefnt hingað til. Það er raunverulegur ásetningur. Og það er það sem verið er að skoða, og gerir þetta flókið.

    Það er alveg rétt hjá þér að standa og falla með því að refsa ekki fyrir það að segjast ætla að gera hitt og þetta. En raunveruleikinn er sá að þeir voru í alvörunni að plana þetta. Og það er allt allt annað en að segja eitthvað í hálfkæringi.

    Það er bannað að plana hryðjuverk. Refsivert. Ég ætla rétt að vona að þú sért sammála því.

Leave a Reply