Hæhæ, mig langar aðeins að skoða hina hliðina þar sem mér finnst allt í umræðunni um flóttafólk á reykjanesbæ vera einhliða. Með fyrirfram óskir um engin rasísk svör eða ,, það er verið að dæla hingað inn flottamönnum”
kommenti. Ég vil bara fá að vita er verið að ýkja sögunar um flottafolkið a Reykjanesbæ? Er þetta populismi hja sumum stjornmalaflokkum og stjornmalafolki.
Ég var að
enda við að lesa útekt af þessu máli inn á heimildinni sja https://heimildin.is/grein/17534/alid-a-otta-a-althingi/

Óska eftir malefnalegri umræðu og jafnvel reynslu 🙏

10 comments
  1. Af hverju er ríkið endalaust að skipta sér af.

    Á ekki bara að leyfa fólki að búa þar sem það vill búa.

  2. Nei þetta er ekki ýkt, ef eitthvað er, er gert lítið úr þessu því fólk er hrætt við að tjá sig.

  3. Bærinn er sprunginn af hælisleitendum/flóttafólkimsem þarfnast mikillar þjónustu frá félags og heilbrigðiskerfinu en mönnun og peningar inn í það hafa engan vegin fylgt þessari gríðarlegu aukningu á þessum hóp undanfarin ár, ef eitthvað er skilst mér að fjárveitingar til HSS hafi dregist saman þrátt fyrir stórkostlega aukin fjölda notenda stofnunarinnar.

    [sjá frétt frá HSS varðandi fólksfjölgun og fjarveitingar](https://www.hss.is/um-hss/frettasafn/fjarframlog-til-hss-fylgja-sem-fyrr-ekki-fjolgun-ibua-og-ferdamanna) – þessi frétt tekur engan vegin tillit til hversu mikla þjónustu þessi aukning þarf, mikil aukning í öryrkjum, ellilífeyrisþegum og eins og ég minnist hér ofar á flóttafólk sl 4 ár.

  4. Bý í innri njarðvík, og ég er því miður hættur að senda dóttur mína í strætó eins og margir (flestir?)foreldrar hér eftir að sögusagnir fóru um að flóttamenn eru að tæla og áreita ungar stúlkur í strætó.

    Samkvæmt öðrum foreldrum þá er þetta langt frá því að vera einsdæmi. Sorgleg þróun þegar maður upplifir sig ekki öruggan í sínu bæjarfélagi.

  5. Spurning með þetta. Það er engin endir á flóttamönnum, þökk sé bandaríkjamönnum og fleiri.

    Með að taka á móti endalaust mörgum. Vakna upp spurningar.

    1. Fjöldi húsa er takmarkaður.

    2. Peningar frá 360 þús manna þjóð til að halda uppi félagskerfi, eru takmarkaðir.

    3. Vill fólk taka stór lán í gegnum ríki og svo hækka skatta til að geta staðið undir meiri fjölda (eða þessum sem er.) ?

    4. Hve lengi og hve oft?

  6. Held að mín upplifun af því að koma reglulega þarna í gegn sé að innflytjendur séu sýnilegri þarna en að mögulega séu fá atvik tengd þeim og vandamál básúnuð upp úr öllu valdi. Maður heyrir rosalega mikið af “ég heyrði að X” sögum en lítið af beinum frásögnum um reynslu af þessum hóp.

    Fyrirkomulagið í bænum er líka þannig að þessir aðilar þurfa að hópast saman á mjög fáa staði til að sækja þjónustu sem þeim er boðin. Og að það sé lítið annað í boði fyrir þessa aðila þannig að þeir þurfa að drepa tímann eða auka framfærslu sína með öðrum leiðum.

    Yfirvöld eru að skapa vanda með því að hýsa og geyma fólk til lengri tíma (oft nokkurra ára) með langri málsmeðferð sem að hægt væri að flýta mjög mikið með réttum áherslum. Oft þegar kemur að því að vísa fólki í burtu erum við að henda út fólki sem að er búið að þurfa að bíða í fleiri ár og búið að mynda hér tengsl við landið og byrjað að reyna að aðlagast aðstæðum.

    Held að þessi “stóri vandi” með flóttamenn sé sjálfskapað dæmi af völdum þess að kerfið var aldrei endurskoðað og lagað til að geta höndlað þessi mál á skilvirkan hátt og núna þarf að finna blóraböggul og þá er valin aukningin á þessum hóp sem að var mjög svo fyrirsjáanleg fyrir mörgum árum.

    Þannig að aldrei að efast um getu íslenskra embættismanna til að varpa sökinni á málefnið sjálft til að forðast að þurfa að bera ábyrgð. Jafnvel þó að það þurfi að fara í að ýkja sögur um flóttafólk.

  7. Ég held að þetta útspil snúist mestmegnis, eins og margt annað, eiginlega bara um peninga. Seinustu tvo áratugi hefur ríkið smám saman úthýst hinum og þessum kostnaðarliðum til sveitarfélaganna, t.d. þjónusta við fatlaða, félagsíbúðir og þetta, aðstoð við flóttafólk. Ekki misskilja mig að þetta sé alfarið á kostnað sveitarfélaga, alls ekki en kostnaðurinn við þessa hluti hefur að mestu leyti verið vanmetinn og sveitarfélög hafa tekið inn kostnaðarliði sem þau eiga erfitt með að standa undir. Og líka, þá eru til sveitarfélög sem bera meiri hlutfallslegan halla af ákveðnum kostnaðarliðum en önnur, Reykjavík er t.d. með langflestar félagsíbúðir og Reykjanesbær með mikið af flóttafólki. Ég veit nota bene ekkert um flóttafólkið sjálft eða hvernig það hegðar sér og ég sé að sjálfu sér ekkert athugavert við að flóttafólk sé hýst í tómu þorpi sem við fengum upp í hendurnar, en þú þarft ekki að vera Einstein til að fatta að það fylgir því auðvitað áreiti og árekstrar að hýsa stóran hóp af fólki sem ekki er hluti af samfélaginu. Punkturinn er að það væri mögulega ásættanlegra að díla við það vandamál ef ríkið kæmi meira að peningahliðinni á þessu, í Þýskalandi t.d. þá var lögð mikil áhersla á að flóttafólki yrði dreift jafnt yfir með örlítið meiri halla á staði þar sem íbúum hafði verið að fækka og aðgerðin var svo til kostnaðarlaus fyrir sveitarfélögin. Á Íslandi þá er upplifun sveitarfélaganna sú að þau fái áreiti og árekstrar að viðbættum þeim lúxus að fá að borga fyrir það, 100% uppskrift af svona pólitík sem er að byrja þarna.

  8. Þú vilt málefnalega umræðu en talar um að ástandið þarna í Reykjanesbæ sé allt ýkt og pópulismi….smh

    Það er líklegra að notendur hérna lesi huginn & muninn grein í viðskiptablaðinu heldur en að ég sé að fara lesa þennan pistil hjá heimildinni, getur gleymt því.

  9. Hafandi unnið með flóttafólki í nokkur ár, þó ekki í Reykjanesbæ, þá rímar þessi neikvæðni sem MBL og þingmenn Sjálfstæðismanna og Miðflokks kynda undir engan veginn við mína upplifun og reynslu. Vissulega eru einstaklingar inn á milli sem láta eins og fávitar en hlutfallið er ekkert verra en hjá íslendingum. Yfirleitt eru flóttamenn uppfullir af þakklæti og gleði. Það er oft vísað í að fullorðnir karlmenn séu að áreita ungar stelpur/konur. Því miður eru það gamlar fréttir og er stundað af íslenskum karlmönnum um allt land. Það hins vegar ratar sjaldnar í fréttir og það er frekar augljós ástæða fyrir því.

  10. buidspil: [Foreldrar hættir að senda börnin sín í strætó hér í reykjanesbæ vegna fullorðnir hælisleitendur eru að áreita börn, tal um að ráða öryggisverði í strætó…](https://old.reddit.com/r/Iceland/comments/14ebnsm/segir_samstarfsmenn_s%C3%ADna_%C3%AD_r%C3%ADkisstj%C3%B3rn_velta_s%C3%A9r/joux2rk/)

    skritidminni: [Bý í innri njarðvík, og ég er því miður hættur að senda dóttur mína í strætó eins og margir (flestir?)foreldrar hér eftir að sögusagnir fóru um að flóttamenn eru að tæla og áreita ungar stúlkur í strætó.](https://old.reddit.com/r/Iceland/comments/14es4z9/reykjanesb%C3%A6r_og_fl%C3%B3ttaf%C3%B3lk/jowzqlt/)

    Frétt á mbl.is [Í er­ind­inu var m.a. sagt að fólk væri áreitt í al­menn­ings­sam­göng­um bæj­ar­ins og bíl­stjór­ar væru að segja upp vegna ágengni og frekju flótta­manna.](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/06/21/thad_er_uppselt_i_reykjanesbae/#:~:text=%C3%8D%20er%C2%ADind%C2%ADinu%20var%20m.a.%20sagt%20a%C3%B0%20f%C3%B3lk%20v%C3%A6ri%20%C3%A1reitt%20%C3%AD%20al%C2%ADmenn%C2%ADings%C2%ADsam%C2%ADg%C3%B6ng%C2%ADum%20b%C3%A6j%C2%ADar%C2%ADins%20og%20b%C3%ADl%C2%ADstj%C3%B3r%C2%ADar%20v%C3%A6ru%20a%C3%B0%20segja%20upp%20vegna%20%C3%A1gengni%20og%20frekju%20fl%C3%B3tta%C2%ADmanna.)

    Skemmtileg tilviljun, örugglega ekkert astroturfing

Leave a Reply