Segir samstarfsmenn sína í ríkisstjórn velta sér upp úr rasískum drullupolli

5 comments
  1. Það er greinilegt að þetta samstarf er að hanga á bláþræði. Ég held ennþá að ríkisstjórnin muni lafa út kjörtímabilið, en ég er minna viss í dag en í gær.

  2. Rasískum drullupolli já.. þetta er orðræðan sem fólk fær fyrir að einu sinni að tala um þessi innflytjendarmál. Ástandið eins og það er og stefnir í er ekki sjálfbært það hljóta allir að sjá það.

  3. Það á greinilega að go all in á hræðsluáróðri og popúlisma. Virkar vel annarsstaðar.

  4. Hmm, það er streita innan sjallanna, Bjarni sagður vera að plana exit og Þórdís Kolbrún sé valin eftirmaður en það er ekkert svona einfalt þegar kemur að formannskjöri, margir sem að telja sig eiga stólinn. Held að það hafi ekki verið almennilegur slagur þarna síðan Davíð stakk Þorstein í bakið.

    VG er í tilvistarkrísu, hafa látið allt eftir sjöllunum og framsókn og grasrótin er ekki að fíla það og fylgið er farið. Katrín líkleg til að segja þetta gott ef að flokkurinn kemur illa út úr kosningum næst.

    Framsókn, æi, gamla góða afhverju ekki bara að kjósa framsókn er ekki að fara að virka aftur. Fóru með enga stefnu nema að lofa hverju sem er og að allt yrði betra. Hafa engu skilað af því að það var engu lofað sérstaklega. Og það er búið að hafa áhrif á álit fólks á þeim.

    Það verður áhugavert að sjá hvað gerist núna þegar það fer að koma smá kosningaskjálfti í fólk. Og þegar fólk fer að reyna að koma sér í sem besta stöðu til að notfæra sér skyndilegar kosningar ef það verður raunin.

Leave a Reply