Kristján í Hvalnum kallar Svan­dísi öfga­fullan kommún­ista

12 comments
  1. Djöfull þurfum við Kommúnistaflokk til að trolla þennan og fleiri ofdekraða auðmenn eins og Kidda Lofts. Því að ef Svandís Svavars, sem gekk i samstarf með Sjálfstæðisflokknum er “kommúnisti”, ímyndið ykkur bræðina og heiftina ef alvöru kommar væru að leggja fram tillögur 😂

  2. Getur einhver útskýrt fyrir mér af hverju er þessi kall að veiða hvali?? Hef heyrt að þessi iðnaður eru tapi t.d…svo hvað er málið

    Er þetta eitthvað Kapteinn Ahab dæmi hjá honum?

    Tek það fram ég hef aldrei fýlað þennan spillta gæja

  3. >Í samtali við Morgunblaðið segir Kristján að Vinstri grænir endurskilgreini með þessu orðin „meðalhóf í stjórnsýslu“ ef þetta fær að viðgangast. Þá sé voðinn sé vís fyrir atvinnulífið í heild allt ef þetta verður látið óátalið.

    Hvernig skaðar bann á hvalveiðum atvinnulífið í heild? Skaða hvalveiðar Íslendinga ekki frekar atvinnulífið í heild? Hafa ekki verið allkyns höft sett á Ísland frá erlendum ríkjum vegna hvalveiða? Myndi það ekki bæta samkeppnishæfni íslands á alþjóðamörkuðum ef hvalveiðum yrði slúttað? Við erum að tala um veiðar á dýrum í útrýmingarhættu fyrir markað sem er ekki til.

  4. Þegar við lýsum því hvernig annað fólk kemur okkur fyrir sjónir, þá erum við að lýsa sjónarhól okkar en ekki fólkinu sjálfu. Þetta er alger grundvöllur þess að skilja eigin hugsanir og tilfinningar – undirstaða tilfinningargreindar.

    Þegar ég segi að Svandís, hinn almenni Íslendingar, og þeir sem almennt vilja telja sig til hinnar hófsömu miðju, séu í raun hægri sinnaðir einstaklingar þá er ég mjög mikið að segja að þetta fólk sé hægri sinnað “miðað við mína afstöðu”. Ég er að segja að ég sé hugsanlega mikið til vinstri, hugsanlega eitthvað “öfga” vinstri miðað við hinn almenna íslending – sem ég er.

    Þegar fólk, bæði Hríslendingar, Kristján sem og allir aðrir, fullyrða svona hluti – að einhver sem er augljóslega ekki kommúnisti, hvað þá öfgakommúnisti; sé öfgakommúnusti – þá eru þeir að koma út úr skápnum sem öfga hægri sinnaðir einstaklingar.

    Nema kannski að ég sé svo öfgakenndur, að Svandís sé í raun öfgafullur kommúnisti, en bara ekki nóg fyrir mig af því ég er í raun mesti kommúnistinn sem kommúnistaði síðan kommúnistar kommúnuðust – en ég held að það sé frekar rugluð staðhæfing þar sem ég er ekkert svo spes. En kannski, ég hef haft rangt fyrir mér með sjálfan mig og ekki gert mér grein fyrir því fyrr en áratugum seinna.

    Svo er líka sjéns að Krisján sé bara í fýlu, og sé að uppnefna fólk. Það er ekki allt fullorðið fólk raunverulega fullorðið.

  5. Fyndið hvað þegar enhver er kallaður nasisti þá byrtist enhver hópur með orðabækur öskrandi hvað þetta er ekki rétt notkun af orðinu. En á hin bóginn þá er sá sami hópur flótur að bergmála svona vitleysu. Voða spes.

  6. Stanz, hobbíið þitt er dýraníð og lætur okkur altaf líta verr og verr út í alþjóðlegum kokteilboðum = Verkalýður allra landa, sameinist og kollvarpið kúgurum ykkar!! /s

  7. Og Svandís gæti hafa haft aðrar ástæður en hún gefur upp. Og stöðvaði þetta frekar harkalega af á seinustu stundu. Kommúnisti er hún nú ekki.

    Ég get ekki fengið séð að hún hafi brotið lög eða brugðist rangt við skýrslunni sem að henni var afhent 19/6 um aflífun dýranna og hvernig hún væri ekki í lagi varðandi hvalveiðarnar. Henni bar að bregðast við skýrslunni, en var kannski merkilega snögg að því miðað við fyrri verk sín.

    Kristján er náttúrulega frekur andskoti sem að hefur komist upp með allt hingað til í krafti peninga. Búinn að halda úti þessu hobbýi sínu sem að hefur haft bein áhrif á utanríkismál okkar og ég veit um nokkra fyrrverandi utanríkisráðherra sem að eru örugglega að skála fyrir því að hann sé að “lenda í þessu” núna eftir að hafa þurft að díla við afleiðingarnar reglulega.

    En heilt yfir er ég bara mest ánægður að Kristján Loftsson sé fúll og láti eins og einhver hafi tekið af honum uppáhalds leikföngin hans. Hef mínar eigin ástæður fyrir því viðhorfi.

  8. Er Svandís ekki kommúnisti? Hún er allavega vel til vinstri og hafði sig mikið fram þegar hún var með heilbrigðisráðuneytið í að ríkisvæða eins og hún gat með tilheyrandi skerðingum á þjónustu og þægindum fyrir borgarann.

Leave a Reply