Bankastjóri íhugar ekki að segja af sér

11 comments
  1. Ber ábyrgð á einu stæstra lögbroti banka á Íslandi.

    Segja af sér? Neiiiiii

    Birna “tæknileg mistök” Einarsdóttir með sína sígildu takta.

  2. En borga ekki viðskiptavinir Íslandsbankans þetta bara, hvernig sem þeir fara að því að setja það í verðlag viðskiptavina þeirra. Væri ég í hennar stöðu þá myndi ég nú frekar segja af mér störfum, þó það væri nú ekki nema af virðingu gagnvart innistæðieigendum bankans sömuleiðis uppá trúverðugleika bankans.

  3. Afhverju er þetta spurning?

    Hún er starfsmaður, ekki kjörinn fulltrúi. Ef hún fer úr starfinu, þarf að segja henni upp, eða hún segir sjálf upp sem er ekki líklegt.

  4. Hún telur sig njóta trausts stjórnar bankans þannig að ég held að þetta sé eðlilegt að hún haldi áfram. Það þarf ekki að vera að hún sem slík hafi í raun borið ábyrgð á þessu.

    Þótt að mér finnist milljarður í sekt vera þannig upphæð að einhverjir aðilar ættu að vera látnir fjúka.

    Versta er að vera viðskiptavinur þessa banka og vita að þessu verður öllu velt yfir á þá.

  5. Síðan hvenær hefur einhver axlað ábyrgð á Íslandi? Örugglega hægt að telja þær manneskjur á einni hendi…

    Svona í alvörunni það þarf alveg svakalega að fara taka til á þessu landi og draga fólk til ábyrgðar!

  6. Getur almennur glæpamaður borið fyrir sig sömu vörn?

    “Vér dæmum þig hér með sekann um grófann fjárdrátt og dæmum þig til 6 mánaða fangelsisvistar.”

    “Takk, en nei takk. Ég hef ekki íhugað að fara í fangelsi.”

  7. Íslenskir pólitíkusar og fólk í hátt settum ábyrgðarstörfum kunna ekki að skammast sín.

    Menningar- og jafnréttismálaráðherra Noregs sagði af sér í morgun eftir að hafa skipað 5 vini sína í stjórnir.

    Á Íslandi kallast þetta bara mánudagur.

  8. Eftir 6 til 8 mánuði mun Íslandsbanki gera við hana starfslokasamning upp á tugi ef ekki hundruði milljóna.

    Verður alveg ótengt þessu auðvitað. Við munum fá að heyra hið klassíska “Það er kominn tími á að gera eitthvað annað, og ég skil við Íslandsbanka alveg ótrúlega stolt af þeim mikla árangri sem við höfum áunnið síðan að ég tók við etc. etc.”

    Þori ekki að fullyrða að það verði orðrétt svona. En það verður ansi nálægt því.

Leave a Reply