
**Leiðbeiningar**
– Keyrið í gegnum Grindavík og svo 10m í viðbót þangað til þið sjáið bílastæði. Þeir mæla með þriðja afleggjaranum en allar leiðirnar eiga að vera í lagi ef það er skortur á stæðum.
– [Google maps hlekkur.](https://goo.gl/maps/CD1ZWp4grFqEsyDa7)
– Mæli með því að fara sem fyrst. Því lengri tími sem líður, því meira hraun myndast og því fjær gosinu getur þú verið.
**Aðstæður**
– Þetta er nokkuð langt og aðeins erfiðari ganga en síðast. Gerið ráð fyrir því að gangan plús skoðun taki 5-7 tíma.
– Það er fínt að fara á hjóli. Mæli með full suspension mtb, fat bike eða nýlegu hard tail. Hafa í huga að hjólið fer bara 2/3 af leiðinni. Takið með ykkur lás, því þið þurfið að skilja hjólin eftir í ~2-3 klst.
– Það var hægt að fara í gegnum sinubrunann og nær gígnum. Metið aðstæður að hverju sinni, á eigin ábyrgð.
**Búnaður**
– Takið með ykkur nóg af vatni og nesti.
– Helst fara í skóm með ökklastuðningi, en ekki nauðsynlegt. Það er langur kafli í lokin þar sem það er auðvelt að snúa á sér ökkla.
– Fullhlaða síma og/eða taka með sér hleðslubanka. Kameran er mikið á lofti og batteríið fljótt að klárast.
**Hætta**
– Eldra fólk og fólk í slæmu formi ætti að hugsa sig tvisvar um.
– Ekki ganga á nýju hrauni. Það kann að virðast hættulaust en er þó sjóðandi heitt undir yfirborðinu enda ennþá í mótun.
– [Allar vefmyndavélar](https://www.visir.is/g/20232438218d/bedid-eftir-eld-gosi-allar-vef-mynda-velarnar-a-einum-stad)
❗**Uppfært 13. júlí:**
⛔ Gönguleið að gosstöðvum lokað fram á laugardag 15. júlí, sökum veðurs og mengunar.
by IAMBEOWULFF
6 comments
Er slóðinn fær fyrir stór rafmagnshlaupahjól?
Takk fyrir þetta!
Er ekki fært frá Keilir bílastæðinu? virðist styttra, nema ég sé með staðsetningu á gosinu vitlaust
Fór á Hardtail mtb og það var fínt. Maður í góðu formi er svona 45mín að hjóla þann kafla sem hægt er að hjóla.
Krísuvíkurleiðin gæti verið fljótlegari.
Bílastæðið sem er næst gönguleiðinni er merkt “Fagradalsfjall Parking P2” á Google maps (63.85871529023239, -22.277938977069176)
Engin þörf á gasgrímum eða?
Á myndum af gosinu hef ég séð vegslóða að svæðinu. Er hægt að fara þarna að á fjórhjóli?