Öku­menn verði að hægja á sér geti þeir ekki tekið fram úr hjól­reiða­fólki – Vísir

by Vitringar

4 comments
  1. Án þess að hafa lesið fréttina, og viðurkenni að ég reyni frekar að komast leiða minna fótgangandi en akandi; hverjir voru hinir möguleikarnir?

  2. Eru ekki fleiri sem elska það að dúndra á bremsuna þegar þarf að mæta bíl á þjóðvegi 1 og einhver hjólreiðamaður með sjálfsmorðshugsanir er að pjakka sig á móti súldinni úti á miðjum vegi?
    Er eitthvert annað vestrænt land þar sem hjólreiðamönnum er beint inn á hraðbrautir?

  3. Lenti nú bara í þessu um daginn á leiðinni heim.

    Var á Raknadalshlíðinni að fara yfir blindhæð.

    Hægði bara á mér, henti bílnum í fyrsta gír og trítlaði yfir hæðina á eftir hjólreiðafólkinu og renndi mér svo framúr þegar aðstæður leyfðu.

    Ég skil ekki fólk sem ergir sig á þessu.

  4. Fyrst lætur ríkið bíla stöðva á rauðum ljósum, svo á gangbrautum, nú fyrir annarri umferð! Hvar endar þetta eiginlega??

Leave a Reply