Veit einhver hvað raunverulega átti sér stað í [þessu máli](https://www.dv.is/frettir/2023/7/26/edda-hlaut-fangelsisdom-noregi-arid-2020-norskur-logfraedingur-thungordur-gard-islenskra-stjornvalda/)? Edda mætti á sínum tíma í spjallþátt Eddu Falak og gaf í skyn að faðirinn væri ofbeldisfullur.

Ég veit að þetta er voðalega leiðinlegur frasi, en ef faðir myndi nema börn sín á brott með þessum hætti þá held ég að fólk væri ekki alveg jafn skilningsríkt.

Hefur einhvern tímann komið fram hvað börnin vilja? Þetta eru ekki mjög ung börn og ef frásögn Eddu er rétt finnst manni finnst eins og það hefði verið hægt að koma í veg fyrir að þau yrðu send til föðursins. Þvert á móti virðist Edda hins vegar tapa hverju dómsmálinu á fætur öðru og það hljóta að fara að vakna spurningar um hver sannleikurinn í þessu máli sé.

by jfl88

2 comments
  1. Ég held að það sé allra best að pæla sem minnst í svona málum sem rata í fjölmiðla nema þú sért nátengdur fólkinu, af þeim einföldu ástæðum að þetta kemur þér ekki við, og það er ekki nokkur leið til þess að vita hver sannleikurinn er út frá einhliða frásögn eins aðila.

  2. Dómar í forræðismálum falla oftast í hag mæðranna. Hljómar einsog það sé frekar klárt að hún sé allavega ekki fyrirmyndar móðir. En ég þekki annars ekkert til þessa máls.

Leave a Reply