Hryssa hafi verið stungin á barka og margar drepist – Vísir

by Tekalali

1 comment
  1. MAST er svipað gott í rannsókn og aðhald á landbúnaðinum þegar kemur til dýraverndar og bandaríska lögreglan að innri rannsóknum á vinnuhættum þegar á einhverjum er brotið.

    Blóðmerahald er til háborinar skammar. Það er leyfilegt að taka 5 L af blóði í hvert skipti í hverri viku í allt að átta vikur. Þetta blóðmagn er um 15% – 20% af blóðmagni hryssunar og heildarblóð sem er tekið yfir þessar 8 vikur eru 80 lítrar, sem þýðir að hryssan þurfi að endurnýja allt blóðið sitt nokkrum sinnum á meðan þessu ferli stendur. Til samanburðar gefur maðurinn 450 mL af blóði sem er undir 10% af heildarblóðmagni líkamans sem er um 5 L og svo verður hann að hvíla blóðgjöf í 3-4 mánuði áður en hann má gefa aftur.

    Svo við tölum ekki um þegar fáránlega illa er staðið að þessu með tilheyrandi heilsufarshættu og hræðslu sem hryssan verður fyrir sem er ekki á neinn hátt reynt að fyrirbyggja. Hryssan er ekki lengur dýr heldur hlutur sem hægt er að nota til að græða smá pening. Samt gerist ekki neitt og þessu er bara sópað undir teppið.

    Mér finnst þetta skammarlegt að þetta fái að viðgangast í siðmenntuðu og þróuðu ríki.

Leave a Reply