Fyrir 16 mánuðum notaði ég Siminn Pay til að kaupa dót frá Tölvulistanum. Og útaf örorkubótum á þeim tíma var frekar ónothæft fyrir allt sem var ekki notað til að lifa út þennann mánuð, þá varð ég að nota Siminn Pay fyrir kaupinn. Það sem ég keypti was umþað bil 80 þúsund, og ég setti það á 24 mánuði.

16 mánuðum seinna er ég búinn að komast að því að ég er búinn að borga yfir 170 þúsund í lánið, og á umþað bil 80 þúsund eftir.**

Vextinir eru ~~1230%~~ 12.3%*

​

***Aldrei*** **nota Siminn Pay.**

​

*Edit: Gat svarið það að það stóð 1230%, þannig annað hvort var appið að skíta á sig, eða ég las númerin vittlaus. Allavega, hérna er screenshot úr appinu, því að fólk var eithvað í eva.

[https://imgur.com/a/GPwTPiq](https://imgur.com/a/GPwTPiq)

**Edit: Sagan var *aðeins* upplásin útaf reiði. Allavega, er búinn að laga tölurnar. Mín mistök.

>!p.s. Ef einhver veit um einhverja hjálp sem ég gæti fengið fyrir þetta, endilega láta mig vita. !<

9 comments
  1. Ef þetta er rétt talaðu þá við Neytendasamtökin

    En mig grunar að þetta sé ekki öll sagan. Og þú sért að ásaka Símann um eitthvað sem er algjörlega þitt val að koma þér út í

    Edit: Ekki að gera lítið úr þér, en 80.000 > 310.000 er aukning uppá 288%. Alls ekki eðlilegt, en það er umtalsvert minna er 1230%

  2. Fyrst og fremst mæli ég með að **hætta alls ekki að borga**, svo að lánshæfismatið þitt fari ekki í klessu.

    Ég myndi bara klára þetta og hugsa þetta svo þannig að þú hafir lært lexíu á þessu.

    Hvort hægt sé að fá einhverja hjálp, þá er spurning hvort þú sért að tala um aðstoð til að kaupa ekki hluti sem þig vantar ekki, ef svo, þá eru til hjálparsamtök fyrir fólk í slíkum aðstæðum.

    En aðstoð við að losna við lánið öðruvísi en að borga það bara? Nei, það er ekki boðið upp á slíkt eftir því sem ég hef lesið og heyrt.

    Ég tók sjálfur lán hjá Netgíró fyrir 140.000kr.

    Ég mun borga 208.488kr í heildina þegar upp er staðið.

    Ef þú ert í slæmri skuldastöðu, en tekst að borga allt upp hægt og rólega, þá er hægt að nota þessar greiðsluþjónustur til að bæta slæmt lánshæfismat hægt og rólega, með því að kaupa ódýra hluti sem þú hefur efni á að borga af mánaðarlega, svo lengi sem þú getur borgað þær greiðslur um leið og þær berast í heimabanka.

  3. Það vantar nú eitthvað þarna inn hjá þér.

    Allar upplýsingar um vexti, ÁHK, lántökugjald og fleira eiga fylgja með þegar raðgreiðslusamningur er samþykktur. Hefur þú skoðað hann? Hvað stendur þar?

    1230% er tala sem stemmir ekki.

  4. https://i.imgur.com/saCLq0d.jpg

    Samkvæmt þessu ættir þú að greiða 116.368kr fyrir 85k lán til 24 mánaða. Hljómar eins og þú sért ekki að segja allan sannleikann eða þú varst tekinn í ósmurt. Af hverju tók þig 18 mánuði að taka eftir þessu?

  5. Ertu að taka með allar innheimtutilkynningarnar og vanskilagjöld sem þú ert að greiða? Mig grunar að svo sé ekki því uppgefnir vextir í þessari þjónustu eru umtalsvert lægri. Nú ætla ég ekki að gera lítið úr stöðu tímabundinna eða varanlegra öryrkja en ef þú þarft að greiðsludreifa 80 þús. kr. reikningi á tvö ár þá ertu að kaupa hlut sem þú hefur augljóslega ekki efni á. Ef mig langar í dýran hlut sem ég tel mig ekki hafa efni á þá stundina þá bíð ég frekar og safna mér fyrir viðkomandi hlut. Það er samt einstaklega íslenskt að kaupa bara allt sem maður vill þá stundina og taka á afleiðingunum síðar.

  6. Ég er ekki einu sinni viss um að það sé hægt að setja 80þús á 24 mánuði. Lánareiknivélin er með max-ið í 6 mánuði ef maður setur 80þús inn.

    Setti inn 120þús og fæ þá möguleika um 12 mánuði. Heildar endurgreiðslan er um 140þús.

    Ef þú ert búinn að borga 220 þús yfir 18 mánuði þá hefurðu verið að greiða eitthvað í kringum 12þús kr á mánuði. Það passar engan veginn við 24 mánaða lánatímabil. Þú ættir að hafa verið að greiða max 5þús kr á mánuði fyrir léttkaupin miðað við að hafa dreift yfir á 24 mánaða tímabil.

    Svo eru 24 sinnum 12þús rétt undir 300þús kr. Eitthvað jævar ekki hér.

  7. Mottóið mitt í lífinu er ef ég get ekki staðgreitt það þá kaupi ég það ekki. Eina lánið mitt er á húsinu mínu

  8. Miðað við screenshotið sem þú setur inn þá virðist upphaflega lánið hafa verið 227.690 kr með lántökugjaldinu, en ekki um 80þ líkt og þú settir fram. Lántökugjaldið var 7.700 kr. svo upphaflega hefur hluturinn kostað 227.690 – 7.700 = 219.990 kr.

    Í sviga fyrir aftan lántökugjaldið er svo tekið fram að það sé 3,5% af lánsupphæðinni sem stemmir við verð upp á 219.990 kr.

    ( 7.700 / 219.990 = 3,5% )

    Gæti verið að þig sé að misminna þannig að það sem þú keyptir hafi samtals kostað 219.990 kr en ekki 80.000 kr?

Leave a Reply