Kópavogsbær keypti björgunarmiðstöðina fyrir verktakana

by samviska

1 comment
  1. Enn ein hversdagslegu og grámyglulegu hrossakaupin í íslensku viðskiptalífi.

    1. [Mata-systkynin](https://heimildin.is/grein/16393/) reyna að kaupa húsnæði og lóð Hjálparsveitarinnar í Kópavogi, sem neitar.

    2. Sveitarfélagið er fengið í málið sem endar á að kaupa hjálparsveitina út á 800 milljónir.

    3. Mata-systkynin fá svo að kaupa lóðina beint aftur af sveitarfélaginu á 500 milljónir, án þess að nokkur annar aðili fái tækifæri á að kaupa.

    Vel farið með okkar skattfé ef þú spyrð mig 🤝🤝 Það verður farsælt fyrir landið að fá framtaksama verktaka til að byggja fleiri leiguíbúðir.

    Mata systkynin eru meðal ríkustu Íslendinganna. Þau eru einna stærstu einstöku hluthafarnir í öllum stóru fasteignafélögunum – Eik, Reginn, Reitir og svo Alma leigufélag. Ef þú ert að kaupa vörur frá Ali, Salathúsinu, Freyju, Matfugl eða nokkurn vegin hvaða ávexti sem er þá ert þú að setja pening í vasa þeirra 😇

    Edit: Það skiptir samt engu máli hvort þú sniðgengur vörurnar þeirra eða ekki – viðskiptamódelið byggir nefnilega á hagstæðum tollum, skattaundanskoti og samkeppnislagabrotum.

Leave a Reply