
Ég ætla að byrja selja á ebay en er smá óviss með nokkur atriði. Ef einhver sem hefur reynslu af að selja á Ebay gæti gefið mér ráð væri það vel þegið.
Skiptir máli hvaða síðu maður notar? [ebay.com](https://ebay.com) liggur beinast við, en [ebay.co.uk](https://ebay.co.uk) er mögulega betra til að selja frá Íslandi, eða hvað?
Ég er að nefnilega að reyna skrá vöru á [ebay.com](https://ebay.com) og það virðist sem síðan geri ráð fyrir að ég sé að senda frá USA. T.d. get ég ekki valið að sleppa “Domestic shipping” sem á auðvitað ekki við. Er því að velta fyrir mér hvort ég sé að velja eitthvað vitlaust.
Svo er það sendingarkostnaður sem er auðvitað mismunandi eftir hvar kaupandi er. Ég býst því ekki við því að geta gefið upp kostnað í lýsingu, en get ég þá rukkað þann kostnað eftir á?
Og að lokum, er málið að senda með Póstinum eða nota eitthvað annað? UPS, DHL, …
by Nominar