Sjötta hver stúlka í 10. bekk beitt kynferðisofbeldi eða áreitt af fullorðnum

by birkir

1 comment
  1. > Á þinginu voru kynntar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sem lögð var fyrir grunnskólanemendur í vor. Ragný Þóra Guðjohnsen, faglegur stjórnandi rannsóknarinnar, segir margt jákvætt hafa komið fram í svörum barnanna. „*Stórum hluta barna líður vel í skólanum, og þau eru samfélagslega meðvitaðri,*“ segir Ragný.
    >
    > Annað sé efni til þess að hafa áhyggjur. Til dæmis eru 30 — 44% barna döpur og allt að 56% með kvíða. „*Og þarna sjáum við verulegan kynjamun og það þarf að huga vel að stúlkunum í þessu sambandi,*“ segir Ragný.
    >
    > 11% barna hafa upplifað heimilisofbeldi og allt að 58% unglingsstúlkna orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi.
    >
    > „*Allt of stór hópur barna hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi, hefur upplifað heimilisofbeldi,*“ segir Ragný. „*Við sjáum aukningu í ofbeldi barna, og þar þurfum við að huga betur að drengjunum.*“
    >
    > 15% unglingsstúlkna í 10. bekk grunnskóla hefur verið nauðgað af jafnaldra og 17% verið beittar kynferðisofbeldi af hálfu fullorðins.
    >
    > ### Meirihluti þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi, sagði engum frá.
    >
    > Guðbjörg S. Bergsdóttir, gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra, bendir á að hægt sé að tilkynna ofbeldi til dæmis á vefnum [112.is](https://112.is), eða leita til fullorðins sem barnið getur treyst.
    >
    > Nýverið fór embættið af stað með átak sem beinir sjónum að gerendum, eða einstaklingum sem eru að leitast eftir óviðeigandi samskiptum við börn. Þeir geta leitað sér hjálpar á vefnum https://taktuskrefid.is/. Þar er til dæmis hægt að [taka sjálfspróf](https://taktuskrefid.is/sjalfsprof/) ef áhyggjur eru um óheilbrigða hegðun á netinu.

Leave a Reply