Ég bý erlendis og er búin að vera crave-a snúða eins maður fær í bakaríinu heima á klakanum.

Er búin að finna ágætis uppskrift sem er mjög nálægt.

Ekta heimagerðir bakaríssnúðar

En ég væri líka til í að geta gert eftirhermu með karamellu glassúr og bleika glassúr er einhver sem veit um uppskrift fyrir þessar glassúrur?

Ef einhver er með aðra uppskrift fyrir snúðum,
Væri ég alveg til í að prufa fleiri uppskriftir.

by ice_tony

1 comment
  1. **Karamelluglassúr**

    100 gr smjör

    100 gr púðursykur (muscavado)

    1 dl rjómi

    1,5 – 2 dl flórsykur

    *Sjóðið saman smjör, púðursykur og rjóma í potti í 5-10 mínútur (leyfið að bubbla aðeins allan tímann og hrærið vel í á meðan)*

    *Takið af hellunni og hrærið flórsykrinum saman við þar til sú þykkt sem ykkur finnst hentug hefur myndast.*

    *Smyrjið á bollurnar með skeið/litlum spaða.*

Leave a Reply