Er búinn að vera að spá í að kaupa mér áskrift að https://aurbjorg.is/ til að hjálpa mér að hafa örlítið meiri yfirsýn yfir fjármálin og er að leita að reynslusögum. Hafa einhverjir hér nýtt sér þetta og ef svo er, finnst ykkur það þess virði? Eru reiknivélarnar þeirra góðar?

Ég er sæmilega vel fjármálalæs og það er engin krísa í gangi með rekstur heimilisins þannig séð, en hugmyndin um að hafa eitt svona “stjórnborð” þar sem ég get haldið utan um þessa hluti er heillandi.

by einarfridgeirs

1 comment
  1. Finnst persónulega 1500 kr heldur mikið fyrir það sem færð, þ.e. þetta eru í raun bara “curated” niðurstöður sem getur hvort eð fengið frítt og haldið utan um í Excel sjálf/ur, en ert ekki að kaupa sérstakar markaðsupplýsingar til að skara fram úr. En sitt sýnist hverjum. Ekki það að getur alltaf prufað bara í einn mánuð og séð hvort umræddar 1.490,- séu virði þessa fyrir þig sjálfa/n eftir að hafa prufað í 2-3 vikur.

Leave a Reply