
Ég ætla að byrja á að biðjast afsökunar á að pósta sömu “frétt” og annar hafði þegar gert..
En að tala um prakkarastrik Bjarna Ben gerir lítið úr þeim hörmungum sem hann og hans fólk (literally) hafa valdið okkur sem þjóð
Ég nenni ekki að tala um stök tilvik spillingar og frændsemi – sá listi er einfaldlega of langur
En ..
Ísland er gríðarlega ríkt af náttúrulegum auðlindum – vatni, hita, fiski etc. Og við eyðum engu í her – aðrir hafa séð um það.
Þessir aðrir byggðu líka flugvelli, gerðu vegi og lögðu ljósleiðara. Ókeypis fyrir okkur
Ef allt væri eðlilegt þá ætti Ísland að vera svipað og Noregur – jafnvel betri, því við erum svo fá.
En – það er ekki þannig. Reglulegar óðaverðbólgur, vonlaus gjaldmiðill ásamt ofurvöxtum og háum sköttum gera að engu það sem við gætum verið en fáum ekki að vera.
Íslendingar eru ein skattpíndasta þjóð veraldar..
En það er engum að kenna nema okkur – því frá lýðveldisstofnun höfum við valið einn flokk til að fara með fjármál landsins
Sá flokkur heitir Sjálfstæðisflokkurinn
Og hverjar kosningarnar á fætur annarri mæta fyrirsvarsmenn þess flokks í sjónvarpssett og minna á að það þurfi að kjósa þá svo við þurfum ekki að borga meira í skatt
Og það mun ekkert breytast – ég þekki fullt af fólki sem er hvorki greindar og/eða þroskaskert sem hefur í dag og gær hrósað Bjarna Ben
by Skratti
1 comment
Hvaða flokkar eru að bjóða lægri skatta?