Skólar byrja á morgun, einu sinni lokuðum við þeim þegar smitum fjölgað

13 comments
  1. Myndrit tekið af covid.is og ég setti X þar sem skólalokanir voru settar á. Eins og þið sjáið er áberandi skortur á X-i þarna hægra megin, sérstaklega nú þegar börn eru mjög stór hluti sýktra, enda engin þeirra (undir 12) bólusett.

  2. Ég mun hringja í framhaldsskóla barnsins míns á morgun til að biðja um fjarkennslu.

    Krakkinn kom til landsins í morgun úr löngu flugi eftir 2 vikur á hættusvæði… sem nú er skilgreint sem allur heimurinn.

    Tæknilega ætti hann að fara í skólann með hinum krökkunum á morgun en mér finnst sú undanþága galin fyrir börn sem voru ekki einusinni skimuð við heimkomu eins og fullorðnir.

  3. Nýr heilbrigðisráðherra, ný viðmið.

    Ég er ekki að styðja þessa ákvörðun, það bara skiptir máli hver stýrir för þegar það þarf að ákveða hvert við skulum stefna.

  4. Mér finnst einsog stjórnvöld og Háskóli Íslands séu búin að gefast upp á Covid. Fokk pólítíkusar mesta sorp sem til er upp til hópa hvað varðar heilsufarslega hagsmuni.

  5. Hvaða aðra möguleika sjáið þið í stöðunni? Hvenær á að opna skólana að ykkar mati? Er bara að forvitnast

  6. Vinn í skóla fyrir Rvkborg og á tvö börn sem eru í leikskóla/skóla hjá Rvkborg.

    Ég er hrikalega ósáttur við að fríinu var ekki framlengt þegar við höfum haft, hvað? 4000-5000 smit á einni viku? Eins og /u/signyh hefur sagt að kvillunum sem að fylgir þessu er ekkert djók.

    Það á að byrja að bólusetja börn 5-11 ára 10. janúar, afhverju má skólinn ekki bíða þangað til, í það minnsta?

  7. Að mínu mati erum við að gera meiri skaða með því að loka skólum (og með öðrum covid reglum). ~85% af Íslendingum eru bólusettir, það eru notaðar grímur (allavegna í framhaldsskólum) og krakkar virðast höndla veikindin best.
    Við erum eins örugg og við munum nokkurn tíman verða…
    Ég er ekki að segja að við ættum ekki að fara varlega
    en með því að loka skólum værum við að valda ófyrirsjáanlegum skaða á marga vegur (andleg heilsa krakka og unglinga, menntun, líkamlega heilsa o.s.f.v.)

  8. Þetta er að mínu mati mjög risky ákvörðun, ekki kannski endilega vegna þess hve alvarlega veikindin leggjast á börn heldur út af því smitin munu koma og hvort sem er setja allt skólastarf í uppnám. Elsta barnið mitt er nú þegar búinn að missa út 3 vikur á haustönninni út af smitum í bekknum, líklega verður þetta orðið 5-7 vikur í lok annarinnar.
    Það að það hafi ekki verið rætt að framlengja skólaárið inn í sumrið lýsir dálítið forgangsröðinni sem menntun barna er í þessu landi.

Leave a Reply