Nýr fjármálaráðherra segir það einu lausn sína á verðbólgunni að standa gegn launahækkunum

by EcstaticArm8175

4 comments
  1. Hagnaðardrifin verðbólga verður látin bitna á launafólki. Þvílíkt skítseyði…

  2. Ef við viljum ríkisstjórn sem velur ekki alltaf að láta hin almenna Íslending taka á sig allar fjárhagsbyrgðir safmélagsins þá þurfum við losa okkur við þær ríkisstjórnir sem kjósa að leggja allar fjárhagsbyrgðir samfélagsins á hinn almenna Íslending, og síðan hætta að kjósa nýjar ríkisstjórnir sem kjósa að leggja allar fjárhagsbyrgðir samfélagsins á hinn almenna Íslending.

    Fyrsta skrefið í að betra ferlana hérna er að hætta að standa á sama um alla þessa spillingu, frændsemi og stanslaust “amateur hour” í allri stjórnsýslunni okkar. Eitt af skrefunum í því fyrsta skrefi er að hjálpa fólkinu í lífinu ykkar að taka sama skref. Þetta er samfélagslegur vandi, og við þurfum að taka á honum sem samfélag en ekki einstaklingar – það þýðir að við þurfum að láta okkur aðra nafla varða en einungis okkar eigin.

  3. Meiri helvítis viðbjóðurinn. Eigendastéttin tæki upp þrælahald ef hún kæmist upp með það 😡

  4. Finnst soldið eins og verðbólgan fljúgi bara samt upp þó við séum ekki að hækka laun?

Leave a Reply