‘Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur að um sjötíu til hundrað þúsund manns hafi sótt baráttufund á Arnarhóli í tilefni Kvennaverkfalls.’

by birkir

1 comment
  1. > Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur að um sjötíu til hundrað þúsund manns hafi sótt baráttufund á Arnarhóli í tilefni Kvennaverkfalls. Veðrið lék við gesti fundarins.
    >
    > Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðið vaktina á margri samkomunni í miðbæ Reykjavíkur undanfarna áratugi.
    >
    > „*Það hefur aldrei verið svona margt fólk í kringum Arnarhól og í nærliggjandi götum, ekki einu sinni á Menningarnótt,*“ segir Ásgeir Þór.
    >
    > Erfitt sé að leggja mat á réttan fjölda. Það hafi lögregla aðeins reynt að gera í stjórnstöðinni með aðstoð myndavéla. Þar hafi menn velt fyrir sér sex stafa tölu.
    >
    > „*Þetta er nálægt sjötíu til hundrað þúsund krónum,*“ segir Ásgeir Þór. Óumdeilt sé að fjöldinn sé rosalegur.
    >
    > „*Við bjuggumst við miklu en þetta sprengdi allar væntingar. Enda málstaðurinn góður og veðrið náttúrulega geggjað.*“

Leave a Reply