Ég get alveg fallist á þetta. Í það minnsta að hluta til. Við megum alveg gera kröfur til fjölmiðla, sérstaklega þeirra sem eru á Spenanum, að þeir stundi vandaða blaðamennsku og fjalli um málefni af fagmennsku og hlutleysi. Sérstaklega í dag þegar upplýsingar, og rangupplýsingar, eru svo til alls staðar og óreiða í kringum þær er mikil.
Það má segja ýmislegt um Morgunblaðið en þau eru ekki alltaf málefnanleg í umfjöllun sinni um málefni Borgarinnar og oft mætti halda að þar fari frekar fram pólitískur áróður Sjálfstæðismanna heldur en blaða- og fréttamennska sem unnin er á faglegum grunni og af heilindum.
Þetta segir bara að svona ríkisstyrkir til fjölmiðla geta hreinlega verið hættulegir fyrir lýðræðið, það gæti alltaf einhver í ríkisstjórn í framtíðinni að reyna að búa til reglur um handstýringu ríkisstyrkja til þess að fá bara jákvæða umfjöllun um sjálfan sig.
2 comments