Vill endur­skoða styrkja­kerfi fjöl­miðla sem sé „eins og villta vestrið“ – Vísir

by Mysterious_Demand875

2 comments
  1. Ég hef kosið pírata þrisvar, en mér er frekar misboðið við þetta, Það er ekki hægt að ætlast til þess að allir fjölmiðlar þaggi niður í öllum sínum skoðunum. Fjölmiðlar eiga að fá að taka afstöðu í þjóðmálum án þess að eiga á hættu að missa ríkisstyrki. Mér finnst líka ógeðslegt að ætla að bæla niður málfrelsi í nafni lýðræðisins. Borgarstjórn er ekki yfir gagnrýni hafin.

  2. Furðulegt að einskorða þessa athugasemd við fjölmiðlastyrki eina saman. Allt opinbera styrkjakerfið þyrfti að fara í endurskoðun – það er svakalega mikið af peningum sem fer í að styrkja fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa ekki á styrk að halda, og það réttlæt með einverjum furðulegum tilvísunum í jafnrétti.

    Það að einblína á fjölmiðlana virðist gefa til kynna að það sé eitthvð sérstakt við fjölmiðla sem þurfi að taka út fyrir sviga frá því vandamáli – og það lítur ekki vel út þegar stjórnmálafólk byrjar að reyna að stýra samfélagsumræðunni og skilgreina hvað telst í lagi að tala um, og hvað ekki.

    Samfélagið allt á að taka þá umræðu, ekki stjórnmálaelítan í gegnum afarkosti á fjármögnun eða fjársulti.

Leave a Reply