Frá­leit skatta­hækkun vinstri­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur

by Hrutalykt

4 comments
  1. >Helmingur HS Orku er í eigu Ancala Partners, vogunarsjóðs í Bretlandi. Mikið hljóta þeir þarna í London að hlægja sig máttlausa yfir heimsku okkur Íslendinga. Að ætla að minnka áhættu þeirra verulega með því að byggja varnargarð og láta einhvern annan borga fyrir hann.

    >Týr skilur ekki hvers vegna ríkisstjórnin leggur svona mál fram – það hlýtur að vera byggt á einhverjum misskilningi.

    >Þrátt fyrir að helsta skemmtun Vinstri-grænna sé að leggja skatta á aðra þá er það varla svo að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vilji virkilega að almenningur greiði reikninginn fyrir breskan vogunarsjóð. Eða hvað?

  2. Einkavæða gróðann. Ríkisvæða tapið. Helvítis fokking fokk.

  3. Eini leiðin fyrir VB til þess að taka nefið úr rassaskoru Sjálfstæðisflokksins nógu lengi til að skrifa þessa grein var með því að kalla hana skattahækkun ‘vinstristjórnar’ Katrínar Jakobsdóttur.

    Þessi miðill er nánast satíra.

Leave a Reply