Ekkert að þessu ef fólk vill borga 300k fyrir þetta. Auðvitað er það svo bara lækna að meta hvort eitthvað þurfi að gera eftir hvað kom út úr þessu. Þó það sé oftast í lagi og verið vaninn hérna á klakanum að bíða bara eftir einkennum þá er það ekki alltaf besta aðferðin.
Ég afrita svar/fyrirspurn kvensjúkdómalæknis við yfirlýsingu Intuens hér;
Góðan dag. Ég fór yfir þær vísindagreinar sem eiga að gefa starfsemi ykkar réttmæti.
Af 41 grein sem er á heimasíðunni er engin grein sem styður heilskimun sem skimun á hraustu einkennalausu fólki. Þetta er ekki skoðun mín heldur staðreynd.
Í stórum meirihluta greinanna er verið að kanna hve vel segulómun greinir æxli eða meinvörp hjá fólki með sannanlega greint krabbamein. Engar greinar í safninu fjalla um skimun á einkennalausu frísku fólki og því er ekki hægt að vísa í þær til að réttlæta það sem fyrirtæki ykkar býður uppá. Þetta er heldur ekki skoðun mín heldur staðreynd.
Niðurstaða nokkurra þeirra rannsókna sem þið vísið í er að segulómun geti mögulega haft þýðingu við greiningar á þeim afmörkuðu sjúkdómum sem verið er að skoða. Í þeim greinum er hvergi sagt að þetta sé, þar með, nothæft og/eða gagnlegt við skimun á einkennalausum frískum einstaklingum. Enn og aftur, ekki skoðun mín heldur staðreynd.
Ég leyfi mér því að spyrja aftur eins og Jón Magnús spyr hér að ofan: Hvaða vísindarannsóknir styðja að heilskimun hjá hraustu einkennalausu fólki sé gagnleg því. Ég óska eftir að svarið sem ég fæ sé undir nafni þess sem svarar en ekki andlitslaus Intuens póstur. Ef þið eruð jafn sannfærð um að það sem þið eruð að gera skili sér í bættu heilsufari landsmanna þá ættuð þið að geta staðið fyrir máli ykkar sem fólk en ekki fyrirtækisfrontur.
Ef þið getið ekki sett ykkar upplýsingar fram undir nafni þá eru þær jafn innihaldslausar og gagnslitlar ykkar málstað og blasir við manni.
5 comments
Er sjálf ekki á móti heilskimun. Við vitum öll hvernig er núverandi ástand hjá okkur varðandi heilbrigðiskerfi hér á landi
Edit: er ekki á móti því , aka neutral.
300k fyrir að fá að vita nákvæmlega ekki neitt um núverandi heilsufar?! Sign me the fuck up!
Þessi umræða minnir helvíti mikið á Scrubs – [https://youtu.be/R9hEa8LKG4c](https://youtu.be/R9hEa8LKG4c)