Veltir upp hvort hætta eigi almennri sýnatöku – mbl.is

12 comments
  1. Sammála þessu. Það er alveg galið að eyða svona miklu fé í að skima einkennalaust fólk.

  2. Vandamálið er að ef allri skimun yrði hætt færu peningarnir aldrei inn í heilbrigðiskerfið heldur í að lækka veiðigjaldið og breyta sköttum sem mundi hagnast efri stéttum.
    Edit: hið opinbera verður bara áfram svelt út í hið endalausa, með þessu áframhaldi stefnir allt í einkavæðingu á við bandaríkin, eftir hve langan tíma er eina spurningin

  3. Pinu grillað samt. Ef þú skimar minna fara færri í einangrun sem þýðir að fleiri smitast sem þýðir að landspítalinn fær ennþá meira að gera?

  4. Við erum með mjög mörg smit, 90% þjóðarinnar er bólusett og örfáar hræður liggja inni á spítala. Ég myndi skilja þetta skimunaræði ef fólk væri að veikjast mikið í stórum stíl, sé engan tilgang með þessum skimunum lengur. Vonandi erum við að sjá fyrir endann á þessu ástandi. Sammála þessum doksa.

  5. Ef við ætluðum að fara eftir þessu þá hefði ég líklega farið smitaður í vinnuna og lagt nokkra samstarfsfélaga með undirliggjandi í hættu.

    Finnst þetta frekar skammtíma sýn hjá honum. Hann er að hugsa lausn án þess að taka á raunverulega vandamálinu.

  6. Vandamálið með asymptomatic testing er að það er aldrei neitt gert við þessa tölfræði. Þrátt fyrir öll þessi test vitum við ekki enn hversu smitandi omicron er fyrir þá sem sýna engin einkenni miðað við þá sem sýna einkenni eða verða verulega veikir af veirunni

  7. Ég spyr aðeins út í tölurnar sem hann nefnir, 50-100 milljónir á dag.

    Fyrir það fyrsta er það virkilega há tala, og í öðru lagi eru vikmörkin riiiiiisastór – í raun svo stór að þessi tala er orðin ótrúverðug.

    Svona til þess að setja hana í samhengi, þá hefur verið þumalputtaregla í mínum bransa að ársstarf kosti tíu milljónir á ári. Hann reiknar með kostnaði upp á 5-10 ársstörf **á dag**, og hann leggur dæmið þannig upp, að það sé beinn kostnaður Ríkisins sem það gæti veitt beint inn í heilbrigðiskerfið í staðinn.

    Það er ekki að kosta ríkið 18 – 36 miljarða á ári að skima fyrir COVID-19.

  8. Stundum þá reyni ég á átta mig á sumum samræðum hérna inná þessum subreddit, sum af þessum svörum eru líklega frá fólki sem er bara komið með leið af covid og vill geta farið aftur í sama gamla farið og áður en samt sem áður þá er þetta heimsfaraldur, þótt það sé alltaf verið að tala um að “haldið” sé að nú séð toppinum náð með covid þá poppar næsta bylgja inn og allt fer í fokk aftur, svo einnig byrjaði ég að átta mig á því að það er pottþétt margir sem fara ekki eftir sóttvarnar reglum, virða ekki sóttkví eða einangrun…testin eru gerð til að vernda þau sem eru með undirliggjandi sjúkdóma sem þetta leggst verr í osf. , smitin eru fokk dýr já en mér finnst eins og peningar skipta meira máli en mannslíf í dag…og hvað á þessi peningur þá að fara í, nýjan bragga með stráum frá Egyptalandi í þetta skiptið 🤔 eftirvill fleiri fylleríi fyrir alþingismenn, það hefði verið löngu búið að byggja nýjan spítala ef peningarnir væru að fara á rétta staði, ég skil alveg hvað læknirinn er að tala um, ég sjálfur myndi glaður borga mína skimun í hvert skipti, bara mín skoðun, ekki kommenta eins og ég sé að skjóta á einhvern persónulega, er bara að ræða hlutina

  9. Held að það sé sjálfsagt mál að velta þessu fyrir sér en ég held að menn eigi amk ekki að fara í einhverjar skyndi ákvarðarðanir. ég held að skynsamlegast væri að fá Kára í einn einna slembi úrtaks rannsókinna og sjá hvað kemur út úr henni. Ef Kári er á svipuðum slóðum hvað varðar fjölda smita og heilsugæslan/Landsspítalinn þá má alveg setjast niður og hugsa málið upp á nýtt en ef Kári er mun lægri smitum en hinir þá held ég að best væri að reina halda núverandi fyrir komulagi að mestu en ég held að menn ættu að reina að breyta þessumm frá flæðisvanda.

Leave a Reply