
Innherji var að birta frétt upp úr þessu grafi.
Erum við með gagnanörda hérna sem geta rýnt í gögnin? Alltaf gaman að pæla í svona og athuga hvernig aðferðafræðin er. Stenst þessi greining skoðun?
Hver er ástæðan að Íslendingar eru sagðir vinna einna minnst? Það er td notað avg weekly hours og allar tölur frekar lágar hjá öllum löndum. Spurning hvernig það er reiknað út.
Ég er ekkert endilega að véfengja þessa niðurstöðu, frábærar fréttir ef þetta er rétt!
by Fun-Artichoke-866
5 comments
Við borgum líka mest þannig að þetta kemur út á sléttu.
Þetta eru gögn frá OECD svo þau koma upphaflega frá Hagstofunni. Væntanlega bara mældar meðalvinnustundir og svo meðallaun, ættir að geta fundið það á síðu Hagstofunnar. Gögnin ættu líka að vera aðgengileg hjá OECD held ég.
Stemmir við allt sem maður hefur séð. Samt voða lítið varið í að þéna mest þegar þú borgar mest.
Við höfum það ótrúlega gott að meðaltali, það er hellingur af fólk sem á erfitt með að ná endum saman en í samanburðinum þá erum við í ágætis málum. Millistéttarfólk, jafnvel með smá menntun gæti séð aukin lífsgæði á því að flytja til skandinavíu.
Varðandi vinnutímann þá var lengi vel gleymt að reikna með kaffitímum og hádegismat. En mælingar voru alltaf þannig að við erum ekki að skila af okkur sömu vinnu og aðrar þjóðir miðað við vinnutíma. Ég hélt að það hefði allt verið leiðrétt í svona samanburði
Meðalvinnuvika 28 klukkustundir, það er áhugavert. Væri gaman að sjá hvernig er komist að þeirri niðurstöðu.
Tekjuhliðin segir svo kannski bara meira um verðmætasköpun á mann. PPP er gagnlegra til að bera saman lífskjör milli landa.