Sæl öll!
Ég er staddur í Tælandi og er orðinn verulega hrifinn að rassbyssum hérlendis.
Er að eiga samtal við aðra íslendinga sem búa hér og eru að sama skapi hvað varðar þessar unaðslegu rassbyssur og við erum að spekúlera hverjar eru reglugerðir(ef einhverjar) varðandi fyrrnefndu rassbyssur heima á klakanum þar sem rassbyssuskortur á sér stað.
Við viljum öll smella þessum rassbyssum við hliðina á klósettum okkar heima svo við getum skvett smá vatni í afturendann.
Við erum svaka þakklát fyrir öll svör og alla hjálp.

Hin elskaða rassbyssa 👇

https://en.m.wikipedia.org/wiki/Bidet_shower

by Rallari

4 comments
  1. Ertu búin/n/ið að heyra í helstu rassasetubúðum á Íslandi eins og Tengi, Byko, Húsasmiðjunni og Bauhaus?

  2. Ég hef gríðarlegan áhuga á svona mini rassbyssum sem hægt er að bæta beint á klósett (eins og td. [https://hellotushy.com/](https://hellotushy.com/) , athugið að síðan HELLOtushy.com er ekki sú sama og bara tushy.com, ég gerði veruleg mistök á vinnutíma rétt í þessu) en held ekki að hægt sé að fá þannig hérlendis nema maður panti það utanfrá.

  3. Er þetta í alvöru það sem við ætlum að kalla bidet?

    Ég er búinn á netinu í dag.

  4. Kynntist svona rassbyssum gegn vilja mínum á Indlandi nýlega, komst að því að þetta er actually snilld.

Leave a Reply