Dagur ætlar að gefa kost á sér í næstu kosningum

11 comments
  1. Partur af mér þráir að sjá einhverjar raunverulegar breytingar í Íslenskri pólitík.

    Hinn parturinn af mér gerir sér alveg grein fyrir því að það eru að sjást raunverulegar breytingar í Íslenskri pólitík, en það eru breytingar eins og t.d. að almenningur er bara ókey með að flokkar tali um að einkavæða vegakerfið okkar.

    Kannski er bara fínt að ekkert breytist, á meðan sama fólkið hengur í sömu stöðunum af sömu ástæðunum, í áratugi. Grasið hinummegin er kannski bara fullkomið forarsvað.

  2. Fínt

    Hann er ágætur, ekki fullkominn, en amk. annars vegar þekkt stærð og alltaf skárri en Sjálfstæðisflokkurinn.

    Ef maður vill aðeins aðrar áherslur, án þess að kollvelta öllu, þá bara styrkja þá flokka sem hann er í samstarfi við sem eru manni nær, Pírata, Viðreisn eða VG, eftir smekk. Þó reyndar alltaf hætta á að VG eða Viðreisn færu frekar með Sjálfstæðisflokknum ef þau dygðu til.

  3. Sé nú ekkert sérstakt við hann Dag ef ég á að vera hreinskilinn, bara skrýtið að hann sé ekki búinn að koma sér inní sjálfstæðismanna hópinn fyrir löngu síðan 😉

  4. Spáin mín er að hann muni verða borgarstjóri aftur en hann hættir í borgarstjórn árið 2025 (kjörtímabilið er til 2026) því árið 2025 eru þingkosningar þá mun hann reyna að vera formaður Samfylkingarinnar (þar sem Logi er ekki sterkur leiðtogi flokksins). Dagur er held ég líka vinsælli en Logi og að þá muni Dagur komast á þing og verða formaður.

  5. Er ekki rétt að gefa honum tækifæri til að saxa á þessar 400 milljarða skuldir. Hann tekur þær tæplega með sér hann hættir.

Leave a Reply