Bonaqua virðist á köldum Klaka eftir nafnbreytingu

by jamesdownwell

6 comments
  1. Fyrir mitt leyti get ég sagt að ég verslaði Topp fram yfir Kristal fyrir nafnbreytinguna, en hef ekki keypt Bonaqua síðan. Ég man ekki eftir að hafa orðið jafnbumbult yfir nafnbreytingu síðan að Harpa Sjöfn varð að Flügger.

  2. Skil ekki hví fyrirtæki henda margra ára markaðssetningu og nafnvirði í ruslið. Þú ert með vörumerki, allir þekkja vörumerkið, allir tengja vörumerkið (sem í mörgum tilfellum er venjulegt nafnorð) við þig og þína vöru. Það að fólk þekki þig er svo ótrúlega verðmætt.

    Þar að auki er “Toppur” bara svo miklu flottara nafn en “Bonaqua”. Hljómar eins og spænsk hársápa.

  3. Vífilfell er að gefa skít í Íslensku eins og við var að búast þegar Spánverjar keyptu það

    ☠️Svali

    ☠️Trópí

    ☠️Toppur

Leave a Reply