Af hverju er krónan alltaf notuð sem blóraböggull fyrir fúsk í hagsstjórn og peningastefnu landsins? Þetta er algerlega bara tól til að brúka, og þessi heilaormur um að kenna krónunni um allt er algerlega að kenna árinni um illan róður.
Er krónan örmiðill – já. Eru örmiðlar dýrari í notkun en stærri miðlar – já. Flýja allir sem það geta þenna gjaldmiðil – Já, auðvitað! Þýðir það að við getum ekki rekið örmiðil að því marki að hann gagnist öllum og leyfir ríkisstjórninni að hafa tól til að hafa áhrif á efnahagsmálin – nei.
Allt vesenið í kringum krónuna er nefnilega ríkið að nota örmiðilinn til að gagnast einungis útflutningaðilum – og það er pólitísk ákvörðun en ekki náttúruleg afleiðing krónunnar.
Við þurfum að hætta að kjósa sama fólkið aftur og aftur á þing, og búast við því að sama fólkið geri allt í einu allt aðra hluti en það hefur alltaf gert, og alltaf talað fyrir. Þangað til getur ekkert breyst af því það er enginn vilji til breytinga.
Viðbætur – stafsetning af því ég kann ekki að gefa sjálfum mér tíma.
1 comment