# Hvað gæti mögulega amað að þessum börnum við það að fá COVID? (Til hvers erum við að bólusetja þau?) Er þetta ekki milt?

DM1 og 2. Sjálfsónæmis heilabólgur. MIS-C. Necrosis í heilavef. CD24+/CD4+ oförvun. Verulega aukin tíðni sykursýkistilfella eftir smit. Og öll möguleg langtímaáhrif af því að stórauka tíðni undirliggjandi sjúkdóma í hópinum *áður* en þau í raun byrja lífið og þurfa svo að fást við allan heilsuskítinn sem það mun bjóða upp á.

>*Hvílík forgjöf út í lífið. Hvílík gjöf fyrir efnahaginn.*

# Só?

Þrálát einkenni hrjá 50% fullorðinna og 2% barna. Af veiru sem kemst í heila. Þar sem 20% hljóta skerta vitsmunagetu. Þetta eru niðurstöður úr 4.000 alþjóðlegum rannsóknum.^[[1](https://twitter.com/haukurmar/status/1479686410684841984)][[2](https://www.reuters.com/article/us-health-coronavirus-finland-long-covid-idUSKBN2JH14W)]

>*Gefum okkur að við sjálf höfum ekkert gildi, líf og heilsa séu aðeins verðmæti að því leyti sem þau þjóna hagkerfinu: hvaða kreisí hagkerfi fellst á skerta vitsmunagetu fimmta hvers íbúa? Í þágu … túrismans?*^[[3](https://twitter.com/haukurmar/status/1479688524769148928)]

# Só??

Covid er ekki kvef, heldur sjúkdómur sem herjar á allan líkamann; hvar sem þú hefur ACE2 viðtaka sem bindiprótín veirunnar festist við.^[[4](https://streamable.com/n7k7ys)] Þú ert með ACE2 viðtaka í þekjufrumum. Þær heita þekjufrumur því þær þekja, til að mynda æðakerfið þitt, og því nær skaðsemi COVID til allra líffæra. Það ræðst á æðakerfið. Blóðrásina. Hjartað. Heilann. Hreðjarnar. Ristilinn. Botnlangann. Lifrina. Gallblöðruna. Og í raun hvaða eitildreitil sem fyrirfinnst í þér og hún nær til.

[Hér](https://streamable.com/q7m8hd) er myndband af COVID vírus sem komst að heilavef. Veiran sýkir heilafrumu og fjölgar sér inni í henni þar til hún springur og veiruagnirnar dreifast áfram, koll af kolli. Myndbandið sýnir 48 tíma progression veirunnar á heilavef.

Heilafrumur vaxa ekki aftur.

# Só???

Það er líklega óhætt að fullyrða að núverandi takmarkanir ásamt bólusetningum duga ekki til að koma í veg fyrir útbreiðslu smita. Að því leyti verður ekki komist hjá gífurlegum fjölda sem mun þjást af langtíma veikindum af völdum COVID. Þó svo að allir á landinu væru bólusettir með örvunarskammt væri ekki hægt að koma í veg fyrir skilgreinda lýðheilsuvá af völdum langtíma færniskerðingu hjá stórum hluta samfélagsins.^[[5](https://www.scientificamerican.com/article/a-tsunami-of-disability-is-coming-as-a-result-of-lsquo-long-covid-rsquo/)]

Það er ekki nein framtíðarlausn í augsýn gegn þessari lýðheilsuvá. Ef við horfum t.d. bara á síþreytu, meginstefið í long covid, þá er ekki einu sinni til úrræði fyrir fólk með síþreytu á Íslandi í dag. Einungis ~15% einstaklinga náðu sér fyllilega af Akureyrarveikinni. Og næstum öll af þessum 15% tóku mörg ár að ná bata. Langmest ungt fólk sem smitaðist á heimavist MA og varð óvinnufært út ævina. Það dó samt enginn. Hvílík mildi.

# Só????

Fjöldi barna með long covid hefur tvöfaldast á þremur mánuðum og þrefaldast á sex mánuðum í aldursflokki 2-16 ára í Bretlandi.^[[6](https://i.imgur.com/PDVTqsz.png)] Talan er mun hærri hjá táningunum.^[[7](https://i.imgur.com/6fyArHJ.png)]

Það er enginn heimur þar sem hægt er að kalla smitsjúkdóm “mildan” sem skilur eftir þennan fjölda barna með skerta getu til að hreyfa sig eða hugsa.

Og þetta eru allt tölur um það hversu mörg börn voru orðin langveik *áður* en Ómíkron kom til sögunnar, og margfaldaði fjölda sýktra.

# Só?????

Já, ég veit hvað þú ert að hugsa, og fyrst þú þrálátast yfir þessu eina atriði, *já* – það *eru* vísbendingar um að covid lungnabólgan sé ekki *alveg* jafn líkleg í kjölfar ómíkron. Þúveist, þessi sem byrjar að drekkja lungunum þínum innanfrá 2 vikum eftir sýkingu. En ef glöggt er að gáð tók ég þann þátt ekki einu sinni með í yfirferðinni hér fyrir ofan. Ég hef ekki minnst einu orði á akút veikindi af völdum smits.

Við vitum nefnilega alveg helling um alls kyns ömurlega, og fremur algenga *langtíma fylgikvilla* af hinum afbrigðunum, og það er alls, alls engin ástæða til að halda að það sama eigi ekki við um ómíkron, þó svo að ómíkron skeri sig úr að því leyti að það herji e.t.v. ekki eins grimmt á lungun 2 vikum eftir útsetningu.

Það er mjög alvarlegur brestur að taka þennan veruleika faraldursins ekki til greina eða einu sinni umræðu. Við þrömmum í takt við tíðarandann og hann þekkir ekki annað en það sem er uppi á pallborðinu. Það þarf alls ekki að haldast í hendur við raunverulega framvindu þekkingar á skaðsemi sjúkdómsins. Það eru fáar viðvörunarbjöllur jafn áreiðanlegar og manneskja sem skortir auðmýkt gagnvart fallvaltleika eigin þekkingar. Sú sem gagnrýnir aðra en marserar áfram eins og þekking hennar sé algild og ekki háð [helmingunartíma](https://en.wikipedia.org/wiki/Half-life_of_knowledge) eins og hver önnur.

# Só??????

Tilhugsunin um að við höfum brugðist gífurlegum fjölda einstaklinga, fjölda barna – ég minni á að börn er sá hópur sem við höfum látið COVID herja mest á^[[8](https://i.imgur.com/U3R0xje.png)] – mun verða óþægileg. Óþægilegri með tímanum; og mörg munu eiga erfitt með að horfast í augu við þá staðreynd að við gerðum ekki meira þrátt fyrir getuna til þess. Sumt fólk mun leita ljósum logum að þægilegri útskýringu en sú sem er líklegust, að þau hafi í raun brugðist, þegar það samsvarar ekki sjálfsímynd þeirra að geta hafa gert eitthvað rangt.

>Við þurfum að læra að mæta ósennileika. Faraldurinn virðist mörgum jafnvel enn ósennilegur. Og viðbragðið, grímurnar, ástandið. Afleiðingarnar, hversu skjalfestar sem þær eru, halda áfram að virðast afar ósennilegar. „*Nei, það stenst ekki að við höfum valið þetta, við myndum aldrei gera það.*“^[[9](https://twitter.com/haukurmar/status/1479692962158239744)]

# Só???????

Sem hugsanaræfingu, ímyndið ykkur veruleika þar sem hjarðónæmi reynist vera óskhyggja. Þar sem að það sem drepi þig ekki geri þig ekki endilega sterkari, að hver sýking sé meira í ætt við dropann sem holar steininn. Hugsið ykkur ef þetta væri það sem marktækir sérfræðingar væru að segja út frá rannsóknum á langtíma afleiðingum faraldursins.^[[10](https://haukurmar.com/2022/01/mission-accomplished-dagur-666/)][[11](https://twitter.com/fitterhappierAJ/status/1475226966349467653)]

Ímyndið ykkur svo, að í þessum veruleika væri ekki hlustað á þau orð.

Hvernig myndi það líta út frá ykkar sjónarhóli, akkúrat núna, væruð þið stödd í þessum veruleika?

>Meðalhófsreglunni er hægt að misbeita. Þú vilt ekki að verktaki beiti meðalhófi til að tryggja að hús hrynji ekki, eða flugliðar að flugvél hrapi ekki. Þú vilt að tékklistinn sé langur, þeir geri meira en þarf, séu alveg vissir. Það heitir varúðarregla. Hún á við í faraldri.^[[11](https://twitter.com/haukurmar/status/1480715339138842627)]

# Só????????

Það má svosum taka ofangreind orð í alls konar áttir. Svo ég skal binda endahnút hér og gera afstöðu mína og tilgang ljósan. *Það eina sem ég er að segja*, er að það hefði verið sjálfsögð tillitssemi við tugþúsundir óbólusettra barna sem nú á að bjóða bólusetningu að bíða þar til þau væru talin fullbólusett, í stað þess að setja þjóðfélagið á hlið og þessi sömu börn fyrirsjáanlega í þann hóp sem nú hefur hlutfallslega smitast langmest.^[[8](https://i.imgur.com/U3R0xje.png)]

Að hleypa þessu á fullt áður en búið er að gefa stórum hluta í þjóðfélaginu (og mögulega þeim mikilvægasta hverri kynslóð fyrir sig) kost á að fá *bólusetninguna sem búið er að ákveða að bjóða þeim*? Fyrir frelsi í afskaplega takmarkaðan tíma, eða *kæsta skötu*?? Það er vont. Verra en skata.

Það verða óhjákvæmilega börn sem munu veikjast alvarlega, og slík dæmi eru til nú þegar. Þau eiga rétt á þeirri vörn, sem möguleg er, rétt eins og við tryggðum okkur. Það er óverjanlegt að fara ekki varlegar en svo að gefa ekki öllum kost á eins góðri vörn og kostur er, áður en veiran fær kost á að leggjast á okkur öll; sem sumir segja að muni vafalaust í ekki-svo-fjarlægri framtíð gera.

En nú hafa vísindin leitt í ljós bæði öryggi og mikilvægi bóluefnanna, þannig að það er hafið yfir allan vafa. Við höfum líka tekið ákvörðun um að bólusetja þau öll til að lágmarka skaðann. Fyrirséð að það tæki rúman mánuð að klára það af.

En hvað gerðum við? Við vældum og vældum um okkar eigið athafnafrelsi, við – eða þau okkar sem fá að búa til aðgang á Facebook til að tjá sig og kjósa til ríkisstjórnar – ákváðum nær samtaka að láta mest smitandi afbrigðið skella á, því *vísbendingar* væru um þetta væri *mögulega* mildara afbrigði *þegar kemur að bráðainnlögnum*.

Þetta eru börn, sem áttu þau fyrirheit allan þennan tíma “að fá að njóta vafans”, og við létum sitja hjá á meðan við tókum eitt, tvö, svo þrjú skot af Pfizer. Eru svo lögboðin og skylduð til að mæta, mörg hundruð talsins, í faraldurshús hverfisins, viku fyrir áætlaða bólusetningu þeirra. Á tímapunkti þegar við erum búin að stofna heilsu ótal þeirra í hættu með því að dreifa afbrigðinu sem víðast án þess að hugsa okkur tvisvar um, eða einu sinni út í börnin.

Ég er talsmaður þess að bólusetja börn. Ég var efins fyrst, og leyfði þeim að njóta vafans varðandi mögulega skaðsemi bólusetningar á meðan ég þáði þrjá skammta. Við öll. Við leyfðum börnunum að njóta vafans í nafni þess að vernda þau fyrir mögulegum skaða. Hvað varð um það?

Ég geri mér grein fyrir því að það eru margir ósammála mér, fólk sem er alveg til í að kasta varanlegum heilsubresti í tugi, hundruði, eða fleiri landa okkar á besta aldri, fyrir frelsi í *afar* takmarkaðan tíma. Ég á erfitt með að treysta dómgreind þeirra einstaklinga og ég tel mig hafa ástæðu til, sem ég tíundaði hér að ofan.

>Dramatískara er það nú ekki.

19 comments
  1. Þetta er voða skrýtin umræða.. börnin mín voru ekki nema nokkurra mánaða gömul þegar þau fengu fyrstu bólusetninguna og skv heilsuveru eru þau búin að vera bólusett fyrir ca 10 mismunandi sjúkdómum.

    Hvorugt þeirra er orðið fimm ára

  2. Frábært innlegg. Finnst óþæginlegt hvað lítið er búið að tala um alla langvarandi fylgikvilla cóvids. Fínt að hamra þessu inn í fólk, sama hve augljóst þetta skyldi vera, að það er mjög slæmt að fá cóvid. Þessi fjandi ræðst á heilan, fólk missir heilasellur, veit ekki hvort við eigum efni á að vera mikið heimskari. Hefði verið fínt að hlífa næstu kynslóðum frá augljósu smiti.

  3. >*”Covid er ekki kvef, heldur sjúkdómur sem herjar á allan líkamann.”*

    Nákvæmlega akkúrat þetta er punktur sem fólk (eða allavega ákveðinn hluti fólks…) bara hreinlega neitar að viðurkenna, og það er orðið ógeðslega fokking þreytandi.

    Geggjaður pistill!

  4. Takk takk takk.

    Ég er búin að vinna á gólfinu frá fyrstu bylgju og hef haldið í hendina á allt of mörgum sem eru að draga sinn síðasta andardrátt út af þessu “kvefi”. Einstaklingum sem, ef þeir voru ekki meðvitundarlausir, lágu með hræðslublik í uppglenntum augum og surgandi andardrátt síðustu andartök lífsins á meðan þeir drukknuðu í eigin slími.

  5. > Það ræðst á æðakerfið. Blóðrásina. Hjartað. Heilann. Hreðjarnar. Ristilinn. Botnlangann. Lifrina. Gallblöðruna. Og í raun hvaða eitildreitil sem fyrirfinnst í þér og hún nær til.

    Það gerir bóluefnið líka og svo ræðst ónæmiskerfið á þessar frumur sem eru “sýktar” með mRNA efninu. Þar að auki eru einhverjar vísbendingar um að gaddaprótínin sjálf séu eitruð https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/34100279/

    > Fjöldi barna með long covid hefur tvöfaldast á þremur mánuðum og þrefaldast á sex mánuðum í aldursflokki 2-16 ára í Bretlandi.

    omicron? Svo gætu long covid tölurnar verið stórlega ýktar https://jamanetwork.com/journals/jamainternalmedicine/fullarticle/2785832 (sjá samt comments fyrir gagnrýni á túlkun höfunda)

    > Tilhugsunin um að við höfum brugðist gífurlegum fjölda einstaklinga, fjölda barna

    Við erum þegar búin að gera það með því að tala ekki um snemmmeðferðir

    > Sem hugsanaræfingu, ímyndið ykkur veruleika þar sem hjarðónæmi reynist vera óskhyggja.

    sem hugsunaræfingu, ímyndið ykkur veruleika þar sem aukaverkanir bóluefnanna koma almennilega fram eftir 2-5 ár.

    Svo erum við að fara að bólusetja börnin núna með efni sem virkaði fínt gegn alpha, aðeins verr gegn delta og svo hversu vel gegn omicron? Fullbólusettir og örvaðir eru 3.36x (336%) líklegri til að smitast af omicron en delta skv. þessari grein https://www.medrxiv.org/content/10.1101/2021.12.27.21268278v1.full
    Hvort erum við að sjá að omicron er vægara eða að bóluefnin hjálpi eitthvað til? Er tvöföld áhætta að taka bóluefni gegn alpha og fá svo omicron?

    Við erum í miðri smitabylgju:
    > Waiting these two weeks is crucial. For all the vaccines, our immune systems aren’t as prepared to stop an infection or avoid severe disease (the type that sends people to the hospital or kills) until those two weeks elapse.

    https://mashable.com/article/vaccines-covid-how-long-fully-vaccinated (nenni ekki að finna betri heimild en þær eru til)

    Svo að börnin gætu verið töluvert verr í stakk búin til að bregðast við covid smiti innan 2 vikna frá bólusetningu.

    Ég vona samt innilega að þú hafir rétt fyrir þér með þetta alltsaman!

  6. Er ekki lagi með folk. Endalaust að likja bolusetningar sem have verið rannsakað og notað i 30+ ár við eitthvað tilrauna bolusetningu buið til innan við ár og ekkert vitað um lengra tima hættu.

    Eg er ekkert anti vaxx mer finnst allir eiga að bolusetja sig en ekki með tilrauna bolusetningar þar sem er svo mikil rugl kringum þau…Lyfja fyrirtækin sem vöru að græða nokkrar hundruð mill $ til nokkrar Billions $ arlega bara utaf covid…. Það er buið að sekta öll þessi lyfja fyrirtæki MARGAR millarjaðar fyrir að ljufa um lyf sem enduðu með að drepa fleiri folk en covid hefur nokkuð tima gert..

    Og siðan er litið skrytið a mig þvi að eg neita að taka fleiri boluefni en þessa sem eg hef nu þegar fengið utaf þvi að eg vil fleiri upplysingar og rannsakanir aður en eg fæ meira hvað þá ekki börnin sem eru ekki með einkenni eða veik…

    Allir eiga sinar skoðanir einsog eg. Mer er alveg sama hvað folk kys að gera hvort þau vilja fá ser engar eða 2 bolusetningar arlega næstu 10 árinn.

    Bara ekki reyna að neyða mig til að gera eitt eða neitt sem enginn getur sannað að se hættulaust þegar eg finn litil sem enga aukaverkarnir frá covid engin hiti eða hosti. Ekki með verki eða liður ill… Ja best að sprauta auka eitur i likaman an þess að þurfa þess….

  7. Þú færð allavega ekki tækifæri til að vernda grunnskólabörnin þín.
    Allir skulu mæta í smit partý í skólum landsins.

    Vonandi fær einhver að rotna í fangelsi fyrir þessi viðbrögð við heimsfaraldrinum!

  8. Vill ekki varpa skugga á rökin hér að ofan, fróðlegt margt og þakka fyrir lesninguna.

    Er bólusettur og held því áfram. Þykir bara sérstakt stundum að þetta skuli vera kallað bóluefni.. þetta virkar í nokkra mánuði svo þarf örvun og þar á móti minnka alltaf sagnir hversu mörg %vörn þessi efni eiga veita okkur. Það eru aukaverkanir að finnast eftir bóluefnin líka. Stelpan mín fékk Covid í bylgju tvö og veiktist lítið og stutt, sem er gott og ég fatta að aðrir eru ekki svo heppnir. Ég er ekkert sérstaklega spenntur að hafa hana í bóluefna áskrift á efnum sem eru líka með stutta sögu, eru skráð með óvitaða tímabundna framleiðslu á bindiprótínum(Vonandi eitthvað sem skýrist betur á næstu árum) og minnka aðeins líkur á long covid með því að minnka líkur á því að þú smitist. Ég sé ekki betur en við endum öll með því að smitast allavega einu sinni. Þetta er breyting á því sem við köllum bóluefni og ég vill halda þessu sem ákvörðun og ekki fara þessa leið að gera lítið úr fólki sem vill spyrja spurningar og jafnvel ekki gefa sér eða börnunum sínum þessi efni strax. En okkur er öllum hent í sama pott með flatJörðurum og öfga-antivaxxers 🙂

    Kveðja,

    Antivaxx, flatjörða gaur.

  9. Fyrsta lagi er ekki bókað að bóluefnin bjargi okkur frá þessu. Þau voru hönnuð fyrir Alpha.

    Það var aldrei neitt hannað fyrir delta.

    Þriðja lagi, það hlaut að vera að græðgin yrði okkur að falli. Það var greinilega heimskulegasta sem við nokkurn tíman gerðum, að opna fyrir túristana.

  10. Geggjað. Börn bólusett. Allir bólusettir sem vilja. Áhættuhópar bústaðir (og heil gomma af fólki ekki í áhættuhópum).

    Ég er hynntur þessu öllu saman, fór í þriðju í dag og konan mín fyrir tveimur mánuðum. Strákurinn minn bólusettur við öllu sem hann á kost á (þó of ungur fyrir þessa og fleiri).

    Er núna hægt að aflétta takmörkunum á Íslandi?

  11. >Ég geri mér grein fyrir því að það eru margir ósammála mér, fólk sem er alveg til í að kasta varanlegum heilsubresti í tugi, hundruði, eða fleiri landa okkar á besta aldri, fyrir frelsi í afar takmarkaðan tíma. Ég á erfitt með að treysta dómgreind þeirra einstaklinga og ég tel mig hafa ástæðu til, sem ég tíundaði hér að ofan.

    Tjaa, ekki nema tvö ár, skuldaraukning um árlegar tekjur ríkissjóðs, verri lýðheilsa í mörgum skilningi, glötuð æska(pælið t.d. í að hafa byrjað í menntaskóla 2019). Svo ég tali ekki um seinkun á greiningum og aðgerðum sem hafa valdið víðtæku heilsutjóni í landinu. Þetta er ekki alveg eins einfalt og OP lætur í veðri vaka og við vitum ekkert hversu lengi í viðbót þetta ástand mun vara.

    >DM1 og 2. Sjálfsónæmis heilabólgur. MIS-C. Necrosis í heilavef. CD24+/CD4+ oförvun. Verulega aukin tíðni sykursýkistilfella eftir smit. Og öll möguleg langtímaáhrif af því að stórauka tíðni undirliggjandi sjúkdóma í hópinum áður en þau í raun byrja lífið og þurfa svo að fást við allan heilsuskítinn sem það mun bjóða upp á.

    Það hefur verið sýnt að offita og fólk í forstigum sykursýki hefur causal áhrif á long covid í mendelian randomization stúdýu. Orsakasamhenginu hjá þér er sennilega snúið á hvolf.

  12. Mín fyrrverandi er femínisti.

    Hún er undir því að hún ætli ekki/vilji ekki láta bólusetja sína 8 ára vegna þess að einhver hræðsluáróður er kominn upp um að þetta myndi flýta fyrir kynþroska hjá henni, setja hana á túr allt og snemma og eitthvað. Mér skylst að það sé byggt á tíðatruflunum sem hafa orðið hjá fullorðnum konum.

    Hvorugt okkar er menntað í heilbrigðisgeiranum, en svo þegar ég minntist á við hana að leyfa frekar dótturinni að njóta vafans ef henni þætti vænt um hana, og að hún ætti það absolutely skilið, dróg hún fram eitthvað spil um að allar rannsóknir í kringum covid væru unnar á karlmönnum.

    ​

    Can’t make this shit up.

    Sumir eru einfaldlega ekki eins staðreyndabyggðir og aðrir.

Leave a Reply