Sólveig Anna boðar nýtt bandalag fyrir kjaraviðræður

by ravison-travison

6 comments
  1. Vill einhver vinna með henni? Skilst að hún sé að kljúfa hreyfinguna.

  2. Verður gaman að lesa allar innherjaupplýsingarnar sem leigusalar og littlu viðskiptamennirnir hér á r/iceland búa yfir.

  3. Það þarf að vera kröftug og “erfið” manneskja í forrystu kjaraviðræða fyrir hönd fjölmennra starfsstétta. Sólveig virðist vera einmitt rétta manneskjan enda grjóthörð og ég er allavegna ánægður að hafa verið með hana að sjá um kjaraviðræður mínar í fortíðinni.

  4. Í ASÍ eru mörg aðildarfélög hvers félagsmenn hafa mismunandi þarfir og mismunandi kröfur.

    Á meðan að sumir félagsmenn vinna láglaunastörf og ná ekki endum saman um hver mánaðarmót, og vilja bót þar á í næstu kjaralotu, eru aðrir sem hafa orðið fyrir hlutfallslegri kjaraskerðingu miðað við ástandið fyrir vaxtahækkanir og verðbólguskotið og vilja fá það bætt, og jafnvel eitthvað aðeins meira, þótt þau hafi það sæmilega gott fjárhagslega. Síðan eru enn fleiri sem vilja ekki berjast fyrir hækkun launa heldur öðrum kjara- og lífskjarabótum eins og styttingu vinnuvikunnar, framlögum í og aðgang að endurmenntunarsjóðum svo þau geti farið á enskunámskeið á Balí, laun í veikindarleyfi o.s.frv.

    Það er ómögulegt að ná öllum saman að borðinu og sagan segir okkur að þau lægst launuðu fá litla sem enga raunverulega kjarabót til lengri tíma litið sitji þau hné við hné með öðrum hærra launuðum hópum.

    Ég skil Sólveigu og hennar fólk vel að láta ekki draga sig á asnaeyrunum í gegnum enn eina kjaralotuna með loforðum um hóflegar hækkanir sem setja ekki of mikinn þrýsting á verðbólguna.

  5. Fyndið að lesa þessi Reddit komment.

    Alltof margir kommentarar sem tala með rassgatinu. Það er ekki eitt komment um fréttina sjálfa. Þetta eru allt yfirborðkenndar skoðanir byggðar á engu. Flestar sem minna á leikskóla.

    Annars eru þetta frábærar fréttir. Vonandi gengur þetta eftir. Efling, VR og SGS eru sterkari saman heldur en í sitthvoru lagi.

Leave a Reply