Að vera treg­gáfaður: Er píkan greindari en pungurinn?

8 comments
  1. Hver hefðu viðbrögð samfélagsins verið ef Bjarni Ben eða Sigmundur Davíð hefðu kallað kvenkyns fjölmiðlamenn “treggáfaðar”, spurt “hvað væri eiginlega að þeim” og sagt “þú ert verða eins og sumar kerlingarnar í þinghúsinu”?

  2. Hlustaði á þetta viðtal. Upplifði þetta sem ágætis banter af hálfu Ingu og þáttastjórnanda.

    Er samt sammála inntakinu í þessum pistli og að vera að kalla menn treggáfaða fór yfir strikið og það hefði allt verið brjálað ef þetta hefði verið karl að tala við tvær konur.

  3. Veit ekki hvort þetta þurfi að vera svo flókið að það þurfi að kyngera þetta og setja það þannig upp að fólk hafi meira þol fyrir yfigangi kvennfólks en karlmanna.

    Ég hafði alltaf meira óþol á því þegar Frosti og Máni fóru hamförum, en þegar viðtalendur þeirra fóru hamförum, og í flestum tilfellum voru þetta allt kynbræður að fara hamförum. Mér finnst eðlilegt að leggja meiri kröfur á hegðun þeirra sem spila á heimavelli, en þá sem koma að spila sem gestir og eru jafnvel ekki með sömu reynslu á leiknum og heimaliðið.

    En það er kannski bara af því ég er treggáfaður.

  4. >”Hvað ef aðstæðurnar í viðtalinu hefðu verið öðruvísi? Hvað ef Inga Sæland hefði verið karlmaður, þáttastjórnendurnir tveir verið kvenmenn og sömu orð verið notuð í þeirra garð? Ég leyfi mér að halda því fram að hin samfélagslegu viðbrögð hefðu orðið töluvert harkalegri.

    Það finnast varla verri “rök” heldur en “Hvað ef þetta hefði verið öðrvísi” sérstaklega þegar því er fylgt með “ég held að það hefði orðið svona”

    >Höfundur situr í 4. sæti Miðflokksins

    Ahh ok, ég skil.

  5. Inga Sæland er ekki gáfuð manneskja.

    Met vilja hennar til að hjálpa fólki og vernda hagsmuni þá sem minna mega sín.

    En ég myndi seint kjósa hana.

Leave a Reply