Mig langar mikið að vita hvort fólk þekki til tónlistarmiðstöð íslands. Þann 15 ágúst Jón frétt hjá stjórnarráðinu um stofnun tónlistarmiðstöð Íslands með Einar Bárðar sem formann. Samtökin er samrunni af uSTEF, Félag hljómplötuframleiðenda, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Tónskáldafélag Íslands auk menningar- og viðskiptaráðherra f.h. ríkissjóðs.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/08/15/Tonlistarmidstod-formlega-stofnud-og-ny-stjorn-kynnt/

Þetta virðist vera stærðarinnar batterý og Einar nefnir þetta meðal annars í podcastinu tveir fellar. Ég hinsvegar finn ekkert um félagið eða starfsemi þess á netinu og langar að vita meira um starfsemi þess og áætæanir.

Er einhver hér sem þekkir inn á félagið og er þetta að fara að breyta einhverju eða fer allur stuðningurinn eins og hefur verið hér áður í að styðja við bakið á þotuliðinu sem er þegar búið að meika það ?

by iceviking

2 comments
  1. Gat nú verið að Einar Bárðar finndi sér annað bákn til að mergsjúga…

  2. Þessi félög sem þú nefnir eru stofnaðilar að þessu, en verða áfram til. Það sem er verið að sameina er Útón (Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, uton.is), Íslenska Tónverkamiðstöð (mic.is) og Inntón (stofnað á síðastliðnu ári og “mun sinna fræðsluhlutverki og stuðningi við innlendan tónlistariðnað”).

Leave a Reply