Ég geri ráð fyrir að þeir lesi af kílómetramælinum í bílnum til þess að staðfesta rétta notkun.
En alveg óháð því þá finnst mér svona eftirlitstæki vera hræðileg innrás í einkalíf fólks og hef miklar áhyggjur af því að ef ekki er tekin hörð afstaða gegn þessu verði litið á þetta sem eðlilegan hlut, og hin tryggingafyrirtækin fylgi í kjölfarið. Persónulega hef ég hætt að biðja um tilboð í tryggingar mínar af VÍS eftir að þeir tóku þessa tækni upp, og sendi stuttan tölvupóst á fyrirtækið til að skýra frá afstöðu minni sem neytandi hvert sinn sem ég bið um tilboð af hinum fyrirtækjunum.
1 comment