Sorglegt hvernig fór fyrir þessum stað. Hvað varð það…pjúra græðgi? þetta byrjaði allt svo vel þegar Simmi og Jói áttu þetta saman. Engu var sparað besti hamborgarinn surf&turf og brúna sósan með frönskunum, og hreindyraborgarinn á jólunum með valdorfsalatinu! Síðan fór Simmi og staðurinn fór beina leið niðurá við! Bestu borgararnir voru teknir út og maður var fljótur að átta sig á að það var byrjað að spara, lélegt hráefni amatör kokkar léleg þjónusta subbulegt og í lokin nóró -Sorglegt!

by ragga001

5 comments
  1. Hot take: þeir voru aldrei neitt sérstakir. Bara novelty að fa ferkantaða hamborgara

  2. Voru frekar miðlungs frá byrjun, má vera þeir urði verri eftir að Simmi fór en svo seldu Joi og co Gleðipinna sem áttu þetta 2022 þannig þeir tveir græddu vel á þessu.

    Áhugavert að Gleðipinnar skiluðu met hagnaði 2022/2023 ef ég man rétt, greinilega gera það sem þetta fyrirtæki geri best það er að mergsjúga allt úr hlutum og loka þeim svo eða gera þá 2 eða 3 flokks.

  3. Því miður er sennilegt að hvernig fyrirtækið dílaði við þetta Nóró-fíaskó hafi haft mikil áhrif. Voru lengi að svara tölvupóstum viðskiptavina, loka stöðunum og fleira í þessum dúr. Ég man að ég fór í Kringluna um kvöldmatarleyti vikunni eftir að það opnaði aftur og staðurinn var tómur.

  4. Foodco sameinaðist Gleðipinnum, stór partur af því var nafnabreytingin þar sem allir tengdu Foodco við mjög neikvæðan hlut.

    Foodco eru með einfalda uppskrift fyrir því að skila hagnaði áður en þeir reka staðinn í þrot. Þeir eru að hluta til fasteignafélag, þeir kaupa ekki veitingastað sem er að leigja húsnæðið nema að geta fest kaup á húsnæðinu sjálfir. Þegar þeir kaupa staði þá minnka þeir skammtastærðir mjög laumulega, næsta skref er að hækka verð á litlum hlutum t.d. bernaise sósa með fröllunum fer úr 200kr í 320kr. Næsta skref er að lækka hráefniskostnað. Skipta út kálinu fyrir ódýrara kál. Skipta úr frönskum fyrir ódýrari franskar og að lokum skipta úr kjöti fyrir ódýrara kjöt. Að endanum kemur að því að hækka verð á tilboðum. Svo er treyst á fastakúnna og fólk sem ráfar inn þangað til almenningur kveikir á perunni að staðurinn hefur hrapað um margar hæðir af gæðum og hækkað verð og þá fer staðurinn að skila minna af hagnaði en þeir geta allavega sætt sig við það að eiga húsnæðið og geta þá reiknað út dæmið til lengra tímabils og reka staðinn áfram

    Þeir afsaka sig öruglega að hluta til að Fabrikkan í Kringlunni hafi lokað vegna þess að það kom upp stórt mál um fjölskyldu eða vina sem öll fengu matareitrun eða smituðust af covid á staðnum, man ekki allveg hvort það var en það reyndist ekki tengjast staðnum en man að flestir fréttamiðlar fjölluðu um smitið og færri um að þetta hafi ekki tengst staðnum en ég held að frá því að Foodco (í dag Gleðipinnar) var stofnað þá hafi þeir aldrei bætt staði við keðjuna sem þeir kaupa, aðeins fækkað stöðum.

Leave a Reply