Mynd sem sýnir hvað Ísland stendur sig miklu verr í Pisa könnuninni en nær öll önnur Evrópulönd

by Hrutalykt

4 comments
  1. Þetta er auðvitað leiðinlegt að sjá, en munum samt að PISA mælir bara árangur úr einni könnun og við Íslendingar höfum aldrei lagt mikla áherslu á þessa könnun. Þetta segir ekki alla söguna, þó vissulega sé sorglegt að við séum að lækka svona milli ára. Kannski þurfum við að fara að leggja meiri áherslu á þessar kannanir, undirbúa nemendur betur fyrir þær og hvetja þá til dáða.

  2. Hvað þýðir þetta? Ég er ekki að meina að ég geti ekki skilið þetta kort. Ég er að meina, atvinnulífið hérna er samkeppnishæft, nýsköpun er samkeppnishæf. Þetta á við um árangur í lestri, vísindum og stærðfræði. Við eigum mörg fyrirtæki sem eru alveg að vinna frumkvöðla starf og eru að skapa verðmæti.
    Mér finnst ég endalaust vera að heyra af vaxandi vinsældum af smáskammtalækningum og hlutum sem er hafnað af núverandi vísindaþekkingu frá meginlandi Evrópu. Hvað þýðir þetta? Þarf bara lítill hluti af samfélaginu að vera gott í stærðfræði og vísindum og það er nóg til að láta hjólin snúast?
    Eða voru kynslóðir fyrir 20 árum betri og mun Ísland sjá samfélagslega hnignun þegar þessu kynslóð sem er ekki að standa sig í skóla mun verða veigameiri?

Leave a Reply